Tryggvi lék í tæpan stundarfjórðung; skoraði sex stig, tók fimm fráköst og varði þrjú skot.
Hér fyrir neðan má sjá tvö af þeim þremur skotum sem Tryggvi varði gegn San Pablo Burgos. Afskaplega flott varnartilþrif hjá Bárðdælingnum.
Las 12.00h... ¿Nos vamos de pinchos? #SPBCZA#LigaEndesa | #ZaragozaIsBackpic.twitter.com/7kfgCiYyWY
— Casademont Zaragoza (@BasketZaragoza) November 4, 2019
Zaragoza hefur farið vel af stað á tímabilinu og er í 2. sæti spænsku deildarinnar með tólf stig, tveimur stigum á eftir toppliði Real Madrid.
Í vetur hefur Tryggvi skorað 4,4 stig, tekið 2,1 fráköst og varið 1,6 skot að meðaltali í leik.
Tryggvi er með næstflest varin skot að meðaltali í leik í spænsku deildinni. David Kravish, leikmaður BAXI Manresa, er sá eini sem hefur varið fleiri skot en Tryggvi.
Tryggvi var þriðji framlagshæsti leikmaður Zaragoza í leiknum gegn San Pablo Borgos með tólf framlagsstig. Þá vann liðið þær mínútur sem hann var inni á vellinum með ellefu stigum.