Bíó og sjónvarp

Reynolds staðfestir að Deadpool 3 sé í vinnslu

Andri Eysteinsson skrifar
Reynolds vann til MTV verðlauna fyrir hlutverk sitt árið 2016.
Reynolds vann til MTV verðlauna fyrir hlutverk sitt árið 2016. Getty/Christopher Polk

Kanadíski leikarinn Ryan Reynolds sem leikið hefur ofurhetjuna óhefðbundnu Deadpool í tveimur samnefndum myndum hefur staðfest að þriðja myndin um Wade Wilson sé í burðarliðnum hjá Marvel Studios.

Reynolds hafði áður sagst telja að Deadpool ætti ekki afturkvæmt á hvíta tjaldið, sér í lagi eftir að Fox kvikmyndaverið og Disney runnu saman. Leikstjórinn Rob Liefeld sagði í viðtali í sumar að hann teldi hins vegar að þriðja myndin yrði að veruleika og hefur Reynolds nú staðfest það.

Sagði Reynolds að Deadpool væri loksins orðin að stórmynd undir Marvel Studios, þá taldi hann að Deadpool 3 myndi verða allt öðruvísi en fyrri myndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.