HEIMSIEG
___________#SVSFCN#SVS1916pic.twitter.com/ZOroBUy7lp
— SV Sandhausen 1916 e.V. (@SV_Sandhausen) August 16, 2019
Rúrik lék með Nürnberg áður en hann fór til Sandhausen í ársbyrjun 2018 og fagnaði því sigri á sínum gömlu félögum í kvöld.
Þetta var fyrsti sigur Sandhausen á tímabilinu. Liðið er í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir þrjá leiki.
Rúrik lék sem fremsti maður hjá Sandhausen í kvöld. Hann var tekinn af velli á 78. mínútu, í stöðunni 2-2. Þegar mínúta var til leiksloka skoraði Philip Turpitz sigurmark Sandhausen.
Næsti leikur Rúriks og félaga er gegn Heidenheim sunnudaginn 25. ágúst.