Stuðmannalögin hafa hljómað í félagsheimilinu Aratungu í Biskupstungum alla helgina en ástæðan fyrir því er sú að nemendur Menntaskólans að Laugarvatni eru að sýna söngleikinn „Með allt á hreinu“.
Gestir hafa streymt í Aratungu um helgina, eitt vinsælasta sveitaballa félagsheimili á árum áður. Nemendur Menntaskólans eru klárir á sviðinu og flytja öll flottu og skemmtilegu lögin úr kvikmyndinni „Með allt á hreinu“. Um 40 nemendur taka þátt í verkinu en tveir af nemendum skólans leikstýra því en það eru Esther Helga og Högni Þór.
„Við erum rosalega margir sem voru pínu efins um hvort að vinir okkar myndu hlusta á okkur sem svona „æðri“ krakka af því að við erum náttúrulega bara samnemendur en þau gætu ekki hafa verið betri“, segir Esther. „Þetta er fyrsta leikstjóraverkið okkar, við höfum aldrei sett upp leikrit en verið í fullt af leikverkum en þetta er fyrsta leiksýningin, sem við leikstýrum“, segir Högni.
Leikstjórar leikhóps Menntaskólans að Laugarvatni, þau Esther Helga og Högni Þór, nemendur skólans, sem eru alsæl með hvernig til hefur tekist með leikritið „Með allt á hreinu“ sem byggir á samnefndri kvikmynd frá 1982.
Egill Hermannsson fetar í fótspor nafna síns, Egils Ólafssonar sem Stinni stuð og Karen Hekla Grönli er í hlutverki Hörpu Sjafnar, s em Ragnhildar Gísladóttur lék.
„Þetta er ógeðslega skemmtilegt leikrit og ógeðslega gaman að vera með í þessu“, segir Karen. Bæði standa þau sig mjög vel í sínum hlutverkum og fara létt með að syngja lögin úr myndinni. „Við segjum kannski ekki létt en við reynum að okkar besta“, segir Egill.
Dúddi tekur að sjálfsögðu þátt í sýningunni og er með sinn skyggnilýsingarfund.
Nemendur skólans fara með verkið á nokkra staða en næstu sýningar verða í félagsheimilinu Þingborg í Flóahreppi, í Hlégarði í Mosfellsbæ, í Hvoli á Hvolsvelli og í Leikskálum í Vík.
Innlent