Björgunarsveitir í Hafnarfirði og Kópavogi voru kallaðar út klukkan ellefu í morgun vegna skútu sem hafði siglt í strand. Skútan hafði strandað í Skerjafirði.
Illa gekk að staðsetja skútuna en um hálf tólf sást til hennar og voru björgunarbátar komnir að henni nú um hádegisbil. Þeir freista nú þess að koma línu í skútuna.
Staðsetning skútunnar er um það bil einni sjómílu utan við Álftanes. Ekki er vitað um skemmdir á skútunni að svo stöddu.
Skúta strandaði við Skerjafjörð
Sylvía Hall skrifar
