Tónlist

Amoji gefur út nýtt lag frá Los Angeles

Andri Eysteinsson skrifar
Magnús hefur gefið út lagið You I We undir nafninu Amoji
Magnús hefur gefið út lagið You I We undir nafninu Amoji Mynd/Aðsend
Magnús Gunnarsson, íslenskur tónlistarmaður sem búsettur er í Los Angeles, hefur gefið út nýtt lag undir listamannsnafninu Amoji.

Lagið heitir „You I We“ og nýtur Magnús liðsinni breskrar söngkonu en lagið er innan annarrar tónlistarstefnu en hann er vanur að vinna. „Ég samdi lagið og melódíuna fyrr á þessu ári en svo tók leitin við að finna réttu röddina,“ segir Magnús.

Magnús hefur undanfarin ár stundað nám í tónlist í Kaliforníu og hyggst hann láta reyna á hæfileika sína í tónlistarsenunni þar. Í síðustu viku fékk Magnús heldur betur góðar fréttir þegar hann fékk samþykkt landvistarleyfi í Bandaríkjunum.

„Það hefur verið mjög langt ferli að fá áframhaldandi landvistarleyfi en nú má ég vinna sem tónlistarmaður hérna úti. Það er ekki hlaupið að því að fá þetta vísa en ég var með góða umsókn og lögfræðing með mér í liði, segir Magnús sem áætlar að næsta lag komi út í ágúst. Þá hefur hann í nógu að snúast í tónlistarbransanum í Los Angeles.

Í tilefni af útgáfu lagsins You I We ákvað Magnús að bjóða upp á gjafaleik þar sem aðalvinningurinn er gisting í glæsihýsi í Orange County.

Hlusta má á lagið á Spotify eða í spilaranum að neðan, frekari upplýsingar um Magnús og ævintýri í Kaliforníu má finna á Facebook síðu hans, IAmAmoji.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.