Kim hélt uppteknum hætti frá því í gær og lék á sex höggum undir pari í dag. Hún er samtals á 15 höggum undir pari. Kim vann Evian-mótið fyrir fimm árum.
Park, efsta kona heimslistans, lék á fimm höggum undir pari í dag, líkt og í gær. Hún er samtals á 14 höggum undir pari.
Jafnar í 3. sæti eru Jin Young Ko og Inbee Park frá Suður-Kóreu á ellefu höggum undir pari. Fjórir efstu kylfingar mótsins koma allir frá Suður-Kóreu og þær hafa allar unnið risamót á ferlinum.
Mi Hyang Lee frá Suður-Kóreu, sem var með forystu eftir fyrstu tvo hringina, er dottin niður í 5. sætið. Hún lék á pari í dag.
Ariya Jutanugarn frá Taílandi lék best í dag, eða á sjö höggum undir pari. Hún er í 8. sæti.
Bein útsending frá lokahring mótsins hefst klukkan 10:00 á Stöð 2 Golf á morgun.
Hyo Joo Kim takes a one-stroke lead into Sunday's final round @EvianChamp over @ROLEX Rankings No. 1, Sung Hyun Park. #NECLPGAStatspic.twitter.com/aC8evBZuBq
— LPGA (@LPGA) July 27, 2019