Og aðdáun á Churchill er ekki bara bundin við Bretland því víða um heim hittast menn reglulega til að spjalla og fræðast um ævi hans og arfleifð. Á Íslandi er Churchill klúbbur sem hefur verið starfræktur frá 2008. Að sögn Árna Sigurðssonar, formanns klúbbsins, er hann hugsaður sem fræðsluvettvangur um ævi og störf sir Winstons Churchill og þau gildi sem hann hafði í heiðri: Hugrekki, staðfestu, stórlyndi, velvilja og virðingu fyrir lýðræði og frelsi einstaklingsins.
Starfsævin spannaði 70 ár
„Þegar Churchill ber á góma hafa flestir eflaust í huga mynd af lágvöxnum þéttholda eldri manni með feitan vindil á milli fingranna,“ segir Árni en bætir svo við: „Hins vegar vita færri um langa sögu hans og reynslu áður en hann varð forsætisráðherra Breta í seinni heimsstyrjöld. Hann hóf ferilinn sem riddaraliðsforingi á hestbaki í valdatíð Viktoríu Bretadrottningar og endaði hann sem forsætisráðherra kjarnorkuveldis þegar hann varð svo forsætisráðherra í seinna skiptið við upphaf valdatíðar Elísabetar núverandi drottningar en hún er langalangömmubarn Viktoríu. Hann þjónaði sex breskum þjóðhöfðingjum á starfsævi sem spannaði rúm 70 ár.“Árni segir að klúbbinn hluta af alþjóðlega Churchill félaginu en það heldur árlega Churchill alþjóðaráðstefnu og gefur út ársfjórðungsritið The Finest Hour. Hlutverk klúbbsins sé að halda fundi þegar tilefni gefst til eða þegar áhugaverða fyrirlesara og erlenda gesti ber að garði og hefur verið farið í fræðsluferðir bæði hér innanlands og erlendis. Nú stendur fyrir dyrum að klúbburinn fari á slóðir Churchills í Lundúnum og nágrenni í haust.
Skoðunarferð á slóðir Churchills
Ferðin stendur yfir frá föstudeginum 11. október og til mánudagskvöldsins 14. október. Þar er hugmyndin að kynnast betur manninum Churchill og huga að rótum hans, mótun og persónu.Strax komudaginn verður farið í skoðunarferð um breska þinghúsið. Churchill náði fyrst kjöri sem þingmaður árið 1900, þá aðeins 25 ára að aldri, og sat nær sleitulaust sem þingmaður næstu 64 ár eða lengur en nokkur annar á 20. öld. Þar fetaði hann í fótspor föður síns sem setið hafði sem þingmaður og ráðherra sem ein helsta vonarstjarna breskra stjórnmála um skamma hríð áður en hann svo lést langt fyrir aldur fram aðeins 46 ára.
Næsta dag, laugardaginn 12. október, verður svo haldið til Blenheim-hallar þar sem Churchill fæddist. Höllin er ættaróðal Marlborough-ættarinnar, þjóðargjöf til fyrsta hertogans Johns Churchill sem var einn fræknasti hershöfðingi Breta og sambærilegur við þá Nelson og Wellington þótt hann sé minna þekktur í dag. Í Blenheim verður snæddur hádegisverður og farið í skoðunarferð um höllina áður en gengið verður í gegnum hallargarðana og að gröf Churchills í þorpinu Bladon, steinsnar frá, þar sem lagður verður blómsveigur.