„Mamma vildi fá að taka við verðlaununum svo hún gæti hitt Ronaldo“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. ágúst 2019 12:30 Lucy Bronze. Getty/ Alex Grimm
Enska knattspyrnukonan Lucy Bronze var í gær valin besti leikmaður ársins hjá UEFA en var samt fjarri góðu gamni á sjálfri verðlaunaafhendingunni. Lucy Bronze var upptekin með félögum sínum í enska landsliðinu sem eru að hefja undankeppni EM. Blaðamaður breska ríkisútvarpsins hitti á Lucy Bronze á æfingu landsliðsins og spurði hana út í verðlaunin.Lucy Bronze's mum wanted to collect her Uefa Women's Player of the Year award so she could meet Ronaldo pic.twitter.com/zd0r0VxZHR — BBC Sport (@BBCSport) August 30, 2019Þar kom meðal annars fram að Lucy Bronze þurfti að halda þessu leyndu. „Ég mátti ekki segja mörgum frá þessu en aðeins liðsfélagar mínir í enska landsliðinu og mamma mín vissu af þessu,“ sagði Lucy Bronze en hvað sagði mamma hennar þegar hún heyrði fréttirnar? „Hún bað um að fara á verðlaunahófið fyrir mína hönd og taka við verðlaunum. Hún vildi nefnilega hitta Cristiano Ronaldo,“ sagði Lucy Bronze brosandi en hún gat þó ekki orðið við ósk móður sinnar. „Ég sagði við hana að ég væri þegar búin að taka við verðlaununum,“ sagði Bronze. Lucy Bronze átti frábært tímabil með Evrópumeisturum Lyon frá Frakklandi og fékk yfirburðarkosningu. Bronze fékk 88 stig eða 32 stigum meira en hin norska Ada Hegerberg sem spilar með henni hjá Lyon. Það dugði Ada Hegerberg ekki að skora þrennu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Á tímabilinu 2018-19 vann Lucy Bronze þrefalt með Lyon, komst í undanúrslit á HM með enska landsliðinu og fékk silfurknöttinn sem næstbesti leikmaður HM. Hún vann einnig SheBelieves bikarinn með enska landsliðinu. Þetta er þriðja árið í röð sem Lucy Bronze hækkar sig á listanum en hún varð fimmta í kjörinu 2018 og áttunda árið 2017.
Enski boltinn Mest lesið Maradona verður grafinn upp Fótbolti Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Fótbolti „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Handbolti Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Fótbolti Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi Körfubolti Hætti við að hætta og samdi við Barcelona Fótbolti Salah setti met í sigri Liverpool Fótbolti Henry hélt að Saka yrði ekki það góður Enski boltinn Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Körfubolti Fleiri fréttir Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Henry hélt að Saka yrði ekki það góður Maradona verður grafinn upp Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Hætti við að hætta og samdi við Barcelona Óvænt tap meistaranna og fimm marka fjör hjá Juventus Salah setti met í sigri Liverpool Ofurvaramaðurinn með ótrúlegt mark til að tryggja Aston Villa sigur Klúðruðu víti og skoruðu tvö sjálfsmörk „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Þúsund Walesverjar í Dalnum og Åge kallar eftir hjálp Snýr aftur heim í KR Kristian ekki spilað nóg en fer í U21 Dæmdi ekki í Meistaradeildinni eftir að hafa hótað að drepa leikmann Ekki ánægður með stöðu Hákons Rafns Enn pláss fyrir Aron sem fer í segulómun Landsliðshópurinn: Sverrir kemur inn og Brynjólfur valinn Hættir við að hætta til að mæta Íslandi Sjáðu markaflóðið úr Meistaradeildinni Sonur Sterlings leiddi Saka út á völlinn Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sakar leikmenn United um leti á æfingum Bann og sekt fyrir að kalla fjórða dómara „litla helvítis kuntu“ Slæm höfuðmeiðsli Le Normand eftir áreksturinn við Tchouaméni Dortmund í sjöunda himni | Stórsigrar hjá Barcelona og Inter Öruggt hjá Skyttunum Þægilegt í Slóvakíu Á met sem enginn vill Brest tímabundið á topp Meistaradeildarinnar Rauða spjaldið hans Bruno dregið til baka Sjá meira