Júlí er sannkallaður martraðarmánuður fyrir Óla Stefán Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júlí 2019 16:45 Óli Stefán Flóventsson vísir/bára
KA er komið niður í tíunda sæti Pepsi Max deildar karla eftir fjórða deildartap sitt í röð á móti HK í Kórnum í gær. Júlí er langt frá því að vera uppáhaldsmánuður Óli Stefáns Flóventssonar þjálfara Akureyrarliðsins. Óli Stefán er á sínu þriðja tímabili sem þjálfari í efstu deild og uppskeran er aðeins sex stig af 33 mögulegum í júlímánuði. Það gera aðeins 18 prósent stiga í boði. Það sem meira er að liðin hans hafa tapað níu af ellefu leikjum sínum í júlímánuði og markatalan er 16 mörk í mínus. Grindavíkurliðið tapaði 7 af 9 leikjum sínum í júlí þessi tvö tímabil sem Óli Stefán stýrði Grindvíkingum í efstu deild. Óli Stefán tók síðan við liði KA fyrir núverandi tímabil. Að þessu sinni byrjaði taphrinan fyrr en í síðustu tvö tímabil en KA-liðið tapaði einnig tveimur síðustu leikjum sínum í júní. KA hefur tapað þessum fjórum leikjum á móti liðunum í 11. sæti (Víkingur), 7. sæti (Fylkir), 6. sæti (Valur) og 8. sæti (HK) en HK-ingar hoppuðu reyndar upp um þrjú sæti með sigri sínum á KA-mönnum. HK var í fallsæti fyrir leikinn. KA-menn fengu síðast stig í Pepsi Max deild karla eftir 2-1 sigur á gömlu lærisveinum Óla í Grindavík 15. júní síðastliðinn eða fyrir sléttum mánuði síðan. KA-menn þurfa aftur á móti á stigum að halda enda er liðið núna aðeins einu stigi frá fallsæti og gæti endað umferðina í fallsæti nái Víkingar stigi á móti Fylki í kvöld. KA-menn eiga eftir að tvo leiki í júlí og eru þeir báðir á heimavelli. Skagamenn koma í heimsókn um næstu helgi og svo mæta FH-ingar viku síðar. Hvorugt auðveldir andstæðingar enda bæði meðal fimm efstu liða deildarinnar.Óli Stefán Flóventsson og tapleikirnir í júlí:2017 með Grindavík - 3 töp í 4 leikjum (Markatala: 3-12)2018 með Grindavík - 4 töp í 5 leikjum (Markatala: 5-9)2019 með KA - 2 töp í 2 leikjum (Markatala: 2-5)Samtals: 9 töp í 11 leikjum (Markatala: 10-26)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vilja senda allar íþróttakonur í kynjapróf Sport Þjálfari í bann fyrir illa meðferð á einni bestu tenniskonu heims en hún er ósátt Sport Haaland reiddist eftir samtal við Mbappé eftir leik Fótbolti Utan vallar: Hver ber ábyrgð á því hvað við erum glötuð? Sport Lærir að synda kútalaus í djúpu lauginni Fótbolti David Moyes: „Það var við hæfi að þetta endaði svona“ Enski boltinn Kári fárveikur í HM-stofunni og endaði í hjartaþræðingu Handbolti Rautt á Slot í hádramatísku jafntefli Enski boltinn Van Dijk: Þetta var bikarúrslitaleikur fyrir Everton Enski boltinn Mörkin í Meistaradeild: Gleymdur Kane og fullkomin vippa Fótbolti Fleiri fréttir Herra Fjölnir tekur við Fjölni „Púsluspilið gekk ekki upp“ Víkingar hættir í Lengjubikarnum Ætla að spila í Grindavík: „Ábyrgð mín að koma liðinu heim“ Sif Atla ráðin framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands Andri Rúnar með þrennu fyrir Stjörnuna í kvöld Þorri sagður á heimleið: „Verð þakklátur alla ævina“ Úlfur óvænt rekinn frá Fjölni Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Sjá meira