Fótbolti

Hjörtur spilaði í tapi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hjörtur í leik með Bröndby
Hjörtur í leik með Bröndby
Hjörtur Hermannsson spilaði allan leikinn þegar Bröndby fékk Esbjerg í heimsókn í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Þremur stigum munaði á liðunum fyrir leikinn þar sem Esbjerg stóð betur af vígi í baráttu um 3.sæti sem gefur umspilssæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Leikurinn var markalaus allt þar til á 83.mínútu þegar Adrian Petre skoraði fyrir Esbjerg.

Reyndist það eina mark leiksins og mikilvæg stig í sarpinn hjá Esbjerg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×