Danmörk tryggði sér síðasta sætið í milliriðli á HM kvenna í handbolta í Japan og komu um leið í veg fyrir það að heims- og Evrópumeistarar Frakka komast í milliriðila á þessu heimsmeistaramóti. Hollendingar enduðu fjögurra leikja sigurgöngu Noregs.
Danir unnu 20-18 sigur á Frökkum í hreinum úrslitaleik um sæti í milliriðli. Staðan var 9-7 fyrir Dönum í hálfleik sem voru skrefinu á undan allan leikinn. Sandra Toft átti enn einn stórleikinn í danska markinu en Stine Jörgensen var markahæst með sjö mörk.
Frakkar urðu heimsmeistarar 2017 og Evrópumeistarar í fyrra en eru núna ekki meðal tólf bestu þjóðanna.
Þórir Hergeirsson var búinn að stýra norska kvennalandsliðinu til sigurs í fjórum fyrstu leikjum sínum á mótinu en norsku stelpurnar misstu tvö mikilvæg stig í milliriðlinum þegar þær töpuðu með tveggja marka mun á móti Hollandi.
Norsku stelpurnar hafa verið betri í seinni hálfleik á mótinu til þessa en svo var ekki í dag. Norska liðið náði fimm marka forskoti í fyrri hálfleik og var 18-14 yfir í hálfleik.
Hollensku stelpurnar jöfnuðu í 23-23 um miðjan seinni hálfleik og voru síðan sterkari á lokakaflanum. Holland tapaði á móti Slóveníu í fyrsta leik en hefur síðan unnið fjóra leiki í röð og fer liðið því með fullt hús inn í milliriðil.
Stine Bredal Oftedal skoraði 9 mörk fyrir norska liðið en það dugði ekki til.
Úrslitin á HM kvenna í handbolta í dag:
A-riðill
Serbía - Slóvenía 29-27
Angóla - Kúba 40-30
Holland - Noregur 30-28
Stig liðanna: Holland 8, Noregur 8, Serbía 6, Angóla 4, Slóvenía 4, Kúba 0.
B-riðill
Brasilía - Ástralía 31-9
Þýskaland - Suður Kóreu 27-27
Frakkland - Danmörk 18-20
Stig liðanna: Suður Kórea 8, Þýskaland 7, Danmörk 7, Frakkland 5, Brasilía 3, Ástralía 0.
C-riðill
Svartfjallaland - Spánn 26-27
Senegal - Kasakstan 30-20
Rúmenía - Ungverjaland 28-27
Stig liðanna: Spánn 10, Svartfjallaland 8, Rúmenía 6, Ungverjaland 4, Senegal 2, Kasakstan 0.
D-riðill
Japan - Kína 35-18
Argentína - Austur Kongó 25-16
Rússland - Svíþjóð 30-22
Stig liðanna: Rússland 10, Svíþjóð 8, Japan 6, Argentína 4, Austur Kongó 2, Kína 0.
Stig þjóða í milliriðlunum tveimur:
Milliriðill eitt
Holland 4
Þýskaland 3
Noregur 2
Suður Kórea 2
Danmörk 1
Serbía 0
Milliriðill tvö
Rússland 4
Spánn 4
Svíþjóð 2
Svartfjallaland 2
Rúmenía 0
Japan 0

