Rúnar Páll á leið í bann eftir að hafa fengið 75 prósent gulu spjaldanna frá sama fjórða dómara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. ágúst 2019 15:30 Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar. Vísir/Bára
Sami fjórði dómari er nánast upp á sitt einsdæmi búinn að koma þjálfara Stjörnumanna í leikbann á lokakafla Íslandsmótsins. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, er á leiðinni í leikbann í Pepsi Max deild karla í fótbolta eftir að hafa fengið sitt fjórða gula spjald í jafnteflisleik á móti Val í gær. Rúnar Páll Sigmundsson benti á það í viðtali við vefsíðuna fótbolti.net að hann sé alltaf að fá gult spjald frá sama fjórða dómara. „Jóhann fjórði dómari átti ekki sinn besta leik og ég er bara mjög heitur út í þá og fékk spjald þegar einhverjar 30 sekúndur voru eftir. Ég held að þetta sé fjórða spjaldið sem Jóhann gefur mér sem fjórði dómari, hann er greinilega eitthvað viðkvæmur," sagði Rúnar Páll við fótbolti.net eftir leikinn í gær. Rúnar Páll fékk líka gul spjöld í deildarleikjum á móti HK í Kórnum, á móti KR á KR-velli og á móti KR í Garðabænum. Jóhann Ingi Jónsson var líka fjórði dómari í báðum leikjunum á móti KR. Í HK-leiknum var Elías Ingi Árnason fjórði dómari. Rúnar Páll fékk gula spjaldið sitt á fimmtu mínútu í uppbótatíma í leiknum í gær en hin gulu spjöldin komu á 33. mínútu á KR-vellinum, á fimmtu mínútu í uppbótatíma í Garðabænum og á 79. mínútu í Kórnum. Þetta var því í annað skiptið í sumar þar sem Jóhann Ingi Jónsson lætur spjalda Rúnar Páll þegar komið er fram á fimmtu mínútu í uppbótatíma.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vilja senda allar íþróttakonur í kynjapróf Sport Styrktaraðili Everton missir leyfið vegna klámauglýsingar Enski boltinn Utan vallar: Hver ber ábyrgð á því hvað við erum glötuð? Sport Þjálfari í bann fyrir illa meðferð á einni bestu tenniskonu heims en hún er ósátt Sport Rod Stewart lék á als oddi í beinni: „Ég er búinn að fá mér nokkra“ Fótbolti Haaland reiddist eftir samtal við Mbappé eftir leik Fótbolti Slot má vera í símanum en fengi það ekki á Íslandi Enski boltinn Lærir að synda kútalaus í djúpu lauginni Fótbolti Enn sami Siggi Ingimundar og áður: „Og bara rúmlega það“ Körfubolti Kári fárveikur í HM-stofunni og endaði í hjartaþræðingu Handbolti Fleiri fréttir Þorri mættur í Stjörnuna og ætlar að vinna titla Herra Fjölnir tekur við Fjölni „Púsluspilið gekk ekki upp“ Víkingar hættir í Lengjubikarnum Ætla að spila í Grindavík: „Ábyrgð mín að koma liðinu heim“ Sif Atla ráðin framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands Andri Rúnar með þrennu fyrir Stjörnuna í kvöld Þorri sagður á heimleið: „Verð þakklátur alla ævina“ Úlfur óvænt rekinn frá Fjölni Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita Sjá meira