Spá Vísis og Stöðvar 2 Sports fyrir Olís deild karla 2019-20
1. sæti
2. sæti
3. sæti
4. sæti
5. sæti
6. sæti
7. sæti
8. sæti - (28. ágúst)
9. sæti - KA
10. sæti - HK
11. sæti - Fram
12. sæti - Fjölnir

KA mætir með nánast sama lið til leiks og á síðasta tímabili. Heimir Örn Árnason er reyndar hættur, þangað til annað kemur í ljós, og hann skilur eftir sig stórt skarð í vörninni sem var sterk á síðasta tímabili.
KA átti tvo af þremur markahæstu leikmönnum deildarinnar á síðasta tímabili. Þeir Tarik Kasumovic og Áki Egilsnes skoruðu samtals 270 mörk, eða nær helming marka KA. Fleiri þurfa að leggja í púkkið í sókninni í vetur.
KA-menn ættu ekki að lenda í fallbaráttu og setja væntanlega stefnuna á að komast í úrslitakeppnina. Til að það náist þarf að KA-heimilið að enn meiri gryfju. KA vann bara fjóra heimaleiki í fyrra. Aðeins botnlið Gróttu vann færri (1).
Komnir/Farnir:
Komnir:
Daníel Örn Griffin frá ÍBV
Patrekur Stefánsson frá Akureyri
Farnir:
Heimir Örn Árnason hættur

Sóknarleikur KA 2018/19 í tölum HBStatz
Mörk skoruð í leik - 9. sæti (25,9)
Skotnýting - 10. sæti (55,5%)
Vítanýting - 6. sæti (73%)
Hraðaupphlaupsmörk - 8. sæti (53)
Stoðsendingar í leik - 10. sæti (9,0)
Tapaðir boltar í leik - 8. sæti (8,6)
Vörn og markvarsla KA 2018/19 í tölum HBStatz
Mörk fengin á sig í leik - 7. sæti (26,9)
Hlutfallsmarkvarsla - 6. sæti (30,3%)
Varin víti - 1. sæti (22)
Stolnir boltar - 4. sæti (82)
Varin skot í vörn - 9. sæti (40)
Lögleg stopp í leik - 2. sæti (21,6)

Markvörður - Jovan Kukobat - 32 ára
Vinstra horn - Dagur Gautason - 19 ára
Vinstri skytta - Tarik Kasumovic - 27 ára
Miðja - Jón Heiðar Sigurðsson - 28 ára
Hægri skytta - Áki Egilsnes- 23 ára
Hægra horn - Allan Norðberg - 25 ára
Lína - Daníel Matthíasson - 25 ára
Varnarmaður - Daði Jónsson - 22 ára

Einar Birgir Stefánsson (f. 1997) átti nokkra ágæta leiki í fyrra og lofaði góðu á köflum. Þess á milli datt hann of langt niður.
Einar er stór og stæðilegur línumaður sem hefur margt til brunns að bera. Línuspilið var ekkert sérstakt hjá KA-mönnum á síðasta tímabili og þeir þurfa að vera duglegri að finna Einar og hann sömuleiðis að nýta færin sín.

KA er eina lið deildarinnar sem er með tvo þjálfara. Líkt og síðustu tvö tímabil er Stefán Árnason við stjórnvölinn hjá KA. Meðþjálfari hans í vetur verður Jónatan Magnússon.
Hann stýrði KA/Þór með góðum árangri um þriggja ára skeið. Á síðasta tímabili endaði liðið í 5. sæti Olís-deildar kvenna sem nýliði. Jónatan var einnig aðstoðarþjálfari Axels Stefánssonar með íslenska kvennalandsliðið. Hann lék með KA á árum áður og varð m.a. Íslandsmeistari með liðinu 2002.
Þrátt fyrir að vera yngsti þjálfarinn í Olís-deildinni í vetur býr Stefán yfir mikilli reynslu. Áður en hann tók við KA, sínu uppeldisfélagi, var stýrði hann Selfossi, kom liðinu upp í Olís-deildina og í úrslitakeppnina í fyrsta sinn í 21 ár.
„Það er gaman að heyra að allir útlendingarnir ætli að vera áfram því þeir eru skemmtilegir á velli og karakterar. Það er gaman af þeim. Þeir fá til sín Patrek frá Akureyri og Daníel Griffin. Það er erfitt að fá menn norður en ég held að þeir hafi gert ágætlega með þessu. Þetta eru ekki menn sem eiga að vera einhverjar stórstjörnur heldur eiga að smella inn í þetta lið sem hjálpar þeim við það að taka næsta skref áfram. Ef þeir halda heimavellinum góðum þá ættu þeir að gera kröfu á það að komast í úrslitakeppnina,“ segir Jóhann Gunnar.
Hversu langt síðan að KA ...
... varð Íslandsmeistari: 17 ár (2002)
... varð deildarmeistari: 18 ár (2001)
... varð meðal þriggja efstu í deildinni: 18 ár (2001)
... varð bikarmeistari: 15 ár (2004)
... komst í bikarúrslit: 15 ár (2004)
... komst í úrslitakeppni: 14 ár (2005)
... komst í undanúrslit: 15 ár (2004)
... komst í lokaúrslit: 17 ár (2002)
... féll úr deildinni: 35 ár (1984)
(Lék undir merkjum Akureyrar frá 2006-2017)
... kom upp í deildina: 1 ár (2018)
Gengi KA í deildarkeppninni undanfarin átta tímabil
2018-19 9. sæti í deildinni
2017-18 B-deild (2. sæti)
2016-17 Hluti af Akureyrarliðinu (10. sæti)
2015-16 Hluti af Akureyrarliðinu (8. sæti)
2014-15 Hluti af Akureyrarliðinu (6. sæti)
2013-14 Hluti af Akureyrarliðinu (6. sæti)
2012-13 Hluti af Akureyrarliðinu (6. sæti)
2011-12 Hluti af Akureyrarliðinu (3. sæti)
Gengi KA í úrslitakeppninni undanfarin átta tímabil
2018-19 Ekki í úrslitakeppni
2017-18 B-deild
2016-17 Hluti af Akureyrarliðinu (Ekki í úrslitakeppni)
2015-16 Hluti af Akureyrarliðinu (8 liða úrslit)
2014-15 Hluti af Akureyrarliðinu (8 liða úrslit)
2013-14 Hluti af Akureyrarliðinu (Ekki í úrslitakeppni)
2012-13 Hluti af Akureyrarliðinu (Ekki í úrslitakeppni)
2011-12 Hluti af Akureyrarliðinu (Undanúrslit)

KA hefur nánast ekkert styrkt sig frá síðasta tímabili. Á móti kemur að liðið ætti ekki þurfa neinn tíma til að spila sig saman.
KA var aðeins einu stigi frá því að komast í úrslitakeppnina á síðasta tímabili og KA-menn eru ekki langt frá liðunum í 6.-8. sæti að getu.
Þeir þurfa hins vegar að bæta sóknarleikinn og finna leiðir til nýta Dag Gautason betur. Þessi stórefnilegi hornamaður fékk úr alltof litlu að moða á síðasta tímabili. Kasumovic er gríðarlega öflug skytta en er hornablindur. Línuspilið þarf líka að vera mun betra en í fyrra og þá þurfa KA-menn að nýta skotin sín betur. Aðeins tvö lið voru með lakari skotnýtingu en KA á síðasta tímabili.
KA spilar ákveðinn og beittan varnarleik og ef hann verður svipaður og í fyrra til viðbótar við aðeins betri markvörslu og fjölbreyttari sóknarleik ætti KA að geta komist í úrslitakeppnina.