Porto áfram eftir framlengingu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Porto er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir sigur á Roma í framlengingu.

Roma var í betri stöðu fyrir leikinn eftir 2-1 sigur í Róm í fyrri leiknum.

Heimamenn í Porto komust hins vegar yfir í leiknum og jöfnuðu einvígið á 26. mínútu með marki frá Francisco Soares. Daniele de Rossi jafnaði hins vegar úr vítaspyrnu fyrir hálfleik.

Í seinni hálfleik skoraði Moussa Marega eftir fyrirgjöf Jesus Corona og þar með tryggði hann framlengingu því staðan jöfn og bæði lið með eitt útivallarmark.

Í framlengingunni var dæmd vítaspyrna eftir myndbandsdómgæslu sem Alex Telles skoraði úr og tryggði heimamenn í Porto áfram.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira