Innlent

Ekkert barn á aldrinum 0-9 ára látist af völdum kórónuveirunnar

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Dánartíðni af völdum kórónuveirunnar eykst verulega eftir 60 ára aldur.
Dánartíðni af völdum kórónuveirunnar eykst verulega eftir 60 ára aldur.

Um 89.260 manns eru smitaðir á heimsvísu af kórónuveirunni og hafa 3048 látist. Samkvæmt upplýsingum frá Worldometers hefur ekkert barn á aldrinum 0-9 ára látist eftir að hafa veikst og afar lítil hætta er á því þar til fólk er á sjötugsaldri. Hún er svo komin í um 15% hjá 80 ára og eldri.

Ríkislögreglustjóri lýsti á föstudag yfir  hættustigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og embætti landlæknis vegna kórónaveiru.

Fólki er bent á að fara að ráðleggingum vegna faraldursins á vef Landlæknis.

Handþvottur mikilvægastur

Sóttvarnarlæknir hefur sent frá sér ítarlegar leiðbeiningar til landsmanna vegna kórónufaraldursins á vefnum landlaeknir.is. Þar er að finna upplýsingar fyrir almenning, heilbrigðisstarfsfólk og viðbragðsaðila, atvinnulíf og ferðaþjónustu.

Kórónuveiran smitast með snerti- og dropasmiti frá veikum einstaklingi. Ekki hefur verið staðfest að fólk smiti áður en einkenni koma fram en sumir fá lítil einkenni og geta smitað.

Til að forðast smit er fólki fyrst og fremst ráðlagt að þvo sér vel um hendur með vatni og sápu. Þegar fólk hefur komið við sameiginlega snertifleti eins og hurðahúna eða tekið við hlutum frá öðrum ráðlagt að nota handspritt. Þá á að forðast samneyti við einstaklinga sem eru með almenn kvefeinkenni. Grímur nýtast best þegar þeir sem eru veikir nota þær en einnig þegar náið samneyti er óhjákvæmilegt. Við þrif eftir aðra ætti að nota einnota hanska.

Fólk er ráðlagt að sleppa því að ferðast til skilgreindra áhættusvæða þar sem samfélagsmit er talið útbreytt.

Ingibjörg Garðarsdóttir lyfsali í Lyfju Grafarholti segir að handspritt hafi verið að skornum skammti síðustu daga.

Handspritt af skornum skammti

Söluaukning milli ára á handspritti hjá Lyfju nemur mörg hundruðum prósenta og hefur víða verið skortur á því. Nokkrir komu í apótek Lyfju í Grafarholti meðan blaðamaður var þar til að spyrjast fyrir um handspritt sem var ekki fáanlegt þá stundina. Þó voru seldir bakterídrepandi klútar. Ingibjörg Garðarsdóttir lyfsali í Lyfju Grafarholti segir að eftirspurnin hafi verið gríðarleg síðustu daga.   

„Handsprittið er búið í mörgum búðum en það er til sums staðar og við reynum að flytja á milli verslana svo eitthvað sé til,“ segir Ingibjörg. 

Von er á stórri sendingu í lok vikunnar.

„Birgjar ætla hins vegar að passa að sjúkrahúsin eigi nóg og verður handspritt skammtað til lyfsala. Í næstu viku kemur svo önnur sending,“ segir Ingibjörg.

Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, mælist til að prestar kveðji ekki söfnuð sinn með handabandi að lokinni athöfn vegna kórónuveirufaraldsins.Vísir/baldur

Prestar kveðji ekki með handabandi

Flest fyrirtæki og stofnanir hafa sent starfsfólki og viðskiptavinum leiðbeiningar um hvernig best sé að haga sér vegna kórónuveirufaraldursins. 

Mörg fyrirtæki og stofnanir hafa sent leiðbeiningar til starfsmanna sinna og viðskiptavina.  Þeirra á meðal er Biskup Íslands sem mælir meðal annars með því að prestar sleppi því að kveðja með handabandi í lok messu, þá er ekki lengur talið óhætt að allir dýfi brauðinu í sama kaleikinn við altarisgöngu og því síður að allir bergi af sama bikarnum. 

Ættingjar fólks á dvalar-og hjúkrunarheimilum er beðnir að koma ekki í heimsókn ef þeir eru með flensueinkenni eða hafa ferðast til áhættusvæða.


Tengdar fréttir

Þrjú ný kórónuveirusmit staðfest

Þrjú kórónusmit til viðbótar hafa verið staðfest hér á landi. Víðir Reynisson hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×