Innlent

Sérstakur saksóknari kærir tvo starfsmenn sína til ríkissaksóknara

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Hauksson er sérstakur saksóknari.
Ólafur Hauksson er sérstakur saksóknari.
Tveir lögreglumenn, fyrrum starfsmenn embættis sérstaks saksóknara, hafa verið kærðir til ríkissaksóknara vegna brots á þagnarskyldu. Mennirnir, sem létu af störfum um síðustu áramót, eru kærðir fyrir að hafa látið þriðja aðila í té upplýsingar úr rannsókn máls sem þeir unnu að á sama tíma og þeir störfuðu fyrir sérstakan saksóknara. Samkvæmt heimildum Vísis snertir þetta málefni Milestone, sem áður var í eigu Karls Wernerssonar, en það fyrirtæki hefur verið til rannsóknar undanfarna mánuði.

„Mennirnir komu til embættisins sem lánsmenn frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu árið 2009 og unnu að rannsókn tiltekins máls þar til þeir hófu störf sem sjálfstæðir rannsakendur um síðustu áramót. Grunsemdir um brot mannanna tveggja vöknuðu eftir að þeir höfðu látið af störfum hjá sérstökum saksóknara. Skoðun embættisins leiddi síðan til kæru til embættis ríkissaksóknara sem fer nú með rannsókn málsins í samræmi við lögreglulög.

Þótt brotið sem tvímenningarnir eru kærðir fyrir sé litið alvarlegum augum hefur það ekki víðtæk áhrif á starfsemi embættisins þar sem þeir unnu að rannsókn á grundvelli tiltekinnar kæru. Þeim verjendum sem hlut eiga að máli hefur verið tilkynnt um grun um meint brot fyrrum lögreglumanna við embættið og um rannsókn ríkissaksóknara," segir Ólafur Þór Hauksson í tilkynningu.

Hann segir jafnframt að vegna rannsóknarhagsmuna mun sérstakur saksóknari ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×