Skoða þurfi Wintris málið í samhengi við árangur Sigmundar Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. mars 2016 19:08
Stjórnarþingmaður segir að skoða verði þögn forsætisráðherra um félagið Wintris í samhengi við þá staðreynd að hann barðist fyrir hagsmunum almennings gegn slitabúunum, ekki hagsmunum konu sinnar. Vantrauststillaga er talin styrkja forsætisráðherra og það er ólíklegt að það þjóni hagsmunum stjórnarandstöðunnar að leggja hana fram. Margir hafa klórað sér í höfðinu yfir því að forsætisráðherra hafi þagað um félagið Wintris Inc. öll þessi ár en félagið er í eigu eiginkonu hans, á jafnvirði 1,2 milljarða króna og lýsti kröfum í slitabú föllnu bankanna. Það hefði sennilega verið mjög óþægilegt fyrir forsætisráðherra á fyrri stigum málsins að upplýsa um félagið því þá hefði tilvist auðæfa eiginkonu hans komist í kastljósið. Konan hans höfðaði mál gegn föður sínum, fyrrum eiganda Toyota umboðsins, til að fá fyrirframgreiddan arf en fólk höfðar ekki mál gegn foreldrum sínum á degi hverjum. Það hefði líka verið óþægilegt fyrir forsætisráðherra að fara hart gegn kröfuhöfum, sem hann gerði alla tíð, ef það hefði legið fyrir að hagsmunir konu hans hefðu með einhverjum hætti blandast inn í þá vinnu. Vera kann að það hefði truflað vinnuna líkt og forsætisráðherrahjónin segja raunar sjálf í samantekt á heimasíðu Sigmundar. En þar segir meðal annars: „Það hefði verið vægast sagt varasamt og orkað mjög tvímælis siðferðilega ef Sigmundur hefði farið að gera þeim sérstaklega grein fyrir því að eiginkona sín ætti inni pening hjá föllnu bönkunum. Það hefði mátt túlka sem skilaboð um að það ætti að hafa þessar eignir í huga eða verja þær að einhverju leyti í viðureigninni við kröfuhafana. Sigmundur vildi ekki færa vogunarsjóðunum vopn í hendur með því að barma sér yfir tapi eiginkonunnar. Þess í stað fékk hann í verkið þá sem höfðu verið harðastir í baráttunni árin á undan, fólkið sem skildi vandann best og hafði reynt að útskýra hann fyrir fyrri stjórnvöldum, fjölmiðlum og almenningi.“ Stjórnmálamenn alltaf að taka ákvarðanir um eigin hagsmuni Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að skoða verði málið í samhengi við þá staðreynd að forsætisráðherra barðist alltaf fyrir hagsmunum almennings á Íslandi í viðureign við slitabú föllnu bankanna en ekki hagsmunum konu sinnar. „Nú er það svo að stjórnmálamenn eru alltaf að taka ákvarðanir sem varða þeirra hagsmuni. Menn geru það við setningu neyðarlaganna og þegar settur var á auðlegðarskattur og lífeyrisréttindi voru undanskilin. Það voru allt ívilnandi ákvarðanir. Þessi ákvörðun um skattlagningu og stöðugleikaframlag var allt mjög íþyngjandi fyrir kröfuhafa slitabúa föllnu bankanna. Öfugt við aðrar ákvarðanir sem teknar hafa verið. Þetta voru íþyngjandi ákvarðanir fyrir kröfuhafanna og líka eiginkonu forsætisráðherra,“ segir Brynjar. Hann segist meta pólitíska stöðu Sigmundar ágæta. Vonast eftir vantrauststillögu Forsætisráðherra sagði í viðtali á Bylgjunni á páskadag að hann vonaðist til þess að stjórnarandstaðan myndi ekki guggna á því að leggja fram vantrauststillögu því þá gæfist tækifæri til þess að ræða árangur ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra nýtur stuðnings í báðum stjórnarflokkunum og talið er að flestir ef ekki allir stjórnarþingmenn muni verja hann vantrausti. Stjórnarandstöðuþingmenn sem fréttastofa hefur rætt við segja að það væri jafnvel ekki mjög klókt af stjórnarandstöðunni að leggja fram vantraust á þessum tímapunkti. Það styrki stöðu Sigmundar og hreinsi málið pólitískt. Skynsamlegra væri að ræða málið áfram undir liðnum „störf þingsins“ eða með óundirbúnum fyrirspurnum. Einn stjórnarandstöðuþingmaður sagði að skynsamlegt væri að bíða eftir upplýsingum um eignir ráðherra í skattaskjólum en félagið Reykjavík Media hyggst birta upplýsingar um þær á næstu dögum í samstarfi við Kastljós RÚV. Greint hefur verið frá því að nöfn þriggja ráðherra séu á listanum. Væri gáfulegt af stjórnarandstöðunni að leggja fram vantraust á Sigmund núna? „Ég myndi ekki gera það ef ég væri í stjórnarandstöðu. Ég held að það sé ekki mjög gáfulegt, nei. Og ég á ekki von á því að þau geri það,“ segir Brynjar Níelsson.
Tengdar fréttir Þrír ráðherrar sagðir með tengsl við aflandsfélög í skattaskjólum Þrír íslenskir ráðherrar og fleira áhrifafólk í íslenskum stjórnmálum eru sagðir vera á listum yfir eigendur aflandsfélaga í skattaskjólum. 29. mars 2016 18:26 Segja Wintris ekki hafa verið í skattaskjóli Sigmundur Davíð og Anna Sigurlaug Pálsdóttir birtu samantekt um Wintris málið. 27. mars 2016 11:58 Segir stöðu sína aldrei hafa verið sterkari Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist vonast eftir því að stjórnarandstaðan guggni ekki á að leggja fram vantrauststillögu. 27. mars 2016 13:41 Brynjar hefði viljað að upplýsingar um Wintris hefðu legið fyrir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, afléttir þagnarbindinu sem samflokksmenn hafa verið í undanfarna daga um aflandseignir forsætisráðherrahjónanna. 29. mars 2016 16:28 Prófsteinn á lærdóma hrunsins Sérfræðingur hjá Siðfræðistofnun telur að það hafi ekki verið heiðarlegt hjá forsætisráðherra að halda tilvist félagsins Wintris á Jómfrúreyjum leyndri fyrir þjóðinni. Hann telur málið prófstein á lærdóma hrunsins og rannsóknarskýrslu Alþingis. 24. mars 2016 18:30 Ráðherrarnir þrír sem tengjast aflandsfélögum í skattaskjólum Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og innanríkisráðherra. 29. mars 2016 19:08 Þingmenn ræða vantraust á Sigmund Formaður Bjartrar framtíðar segir koma til greina að leggja fram vantrauststillögu á forsætisráðherra. Ástæðan er upplýsingar sem birtust um fjármál eiginkonu ráðherrans í síðustu viku. 21. mars 2016 07:00 Birti upplýsingar um fjármál 2009 en nefndi ekki hlut sinn í Wintris Forsætisráðherra var enn skráður fyrir félaginu þegar samantekt um hagsmunatengsl hans var birt fyrir kosningar. 29. mars 2016 13:30 Vonar að forsætisráðherra bregðist við áður en vantrauststillaga verði lögð fram „Ég held að í öllum þroskuðum lýðræðisríkjum að þá myndi hann segja af sér," segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata. 21. mars 2016 12:24 Gunni Þórðar spyr um Tortóla-peninga Troðfullur Eldborgarsalur sagðist enga peninga eiga á Tortóla. 29. mars 2016 10:32 Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent Kennaraverkfalli frestað Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent Þessi mættu best og verst í þinginu Innlent Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Innlent Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Innlent Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Innlent Fleiri fréttir Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“ Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Svona verður kosningavaka Stöðvar 2 Næststærsta gosið hingað til Kennaraverkfalli frestað „Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Engin kæra borist vegna upptakanna Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga Bein útsending: Fundur fólksins í Hörpu Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Ekkert D-vítamín í kæstum hákarli Fleiri gular viðvaranir á kjördag Slæm spá fjölgar þeim sem greitt hafa atkvæði Áframhaldandi gasmengun í Grindavík Margir greiða atkvæði utan kjörfundar fyrir austan Heilskimun Intuens enn til skoðunar hjá landlæknisembættinu Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í íshellaferð Æfing lögreglu og fíkniefnamál ollu misskilningi Þessi mættu best og verst í þinginu Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Stefnir enn í hríðarveður á Austfjörðum á kjördag Erfiðara að manna í frístund í austurhluta borgarinnar Sjá meira
Þrír ráðherrar sagðir með tengsl við aflandsfélög í skattaskjólum Þrír íslenskir ráðherrar og fleira áhrifafólk í íslenskum stjórnmálum eru sagðir vera á listum yfir eigendur aflandsfélaga í skattaskjólum. 29. mars 2016 18:26
Segja Wintris ekki hafa verið í skattaskjóli Sigmundur Davíð og Anna Sigurlaug Pálsdóttir birtu samantekt um Wintris málið. 27. mars 2016 11:58
Segir stöðu sína aldrei hafa verið sterkari Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist vonast eftir því að stjórnarandstaðan guggni ekki á að leggja fram vantrauststillögu. 27. mars 2016 13:41
Brynjar hefði viljað að upplýsingar um Wintris hefðu legið fyrir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, afléttir þagnarbindinu sem samflokksmenn hafa verið í undanfarna daga um aflandseignir forsætisráðherrahjónanna. 29. mars 2016 16:28
Prófsteinn á lærdóma hrunsins Sérfræðingur hjá Siðfræðistofnun telur að það hafi ekki verið heiðarlegt hjá forsætisráðherra að halda tilvist félagsins Wintris á Jómfrúreyjum leyndri fyrir þjóðinni. Hann telur málið prófstein á lærdóma hrunsins og rannsóknarskýrslu Alþingis. 24. mars 2016 18:30
Ráðherrarnir þrír sem tengjast aflandsfélögum í skattaskjólum Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og innanríkisráðherra. 29. mars 2016 19:08
Þingmenn ræða vantraust á Sigmund Formaður Bjartrar framtíðar segir koma til greina að leggja fram vantrauststillögu á forsætisráðherra. Ástæðan er upplýsingar sem birtust um fjármál eiginkonu ráðherrans í síðustu viku. 21. mars 2016 07:00
Birti upplýsingar um fjármál 2009 en nefndi ekki hlut sinn í Wintris Forsætisráðherra var enn skráður fyrir félaginu þegar samantekt um hagsmunatengsl hans var birt fyrir kosningar. 29. mars 2016 13:30
Vonar að forsætisráðherra bregðist við áður en vantrauststillaga verði lögð fram „Ég held að í öllum þroskuðum lýðræðisríkjum að þá myndi hann segja af sér," segir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata. 21. mars 2016 12:24
Gunni Þórðar spyr um Tortóla-peninga Troðfullur Eldborgarsalur sagðist enga peninga eiga á Tortóla. 29. mars 2016 10:32