Lífið

Segir að Kris Jenner hafi sjálf lekið kynlífsmyndbandi Kim Kardashian

Stefán Árni Pálsson skrifar
Spurning hvort þetta sé rétt.
Spurning hvort þetta sé rétt. vísir/getty
Þrátt fyrir að rúmlega áratugur sé liðin frá því að kynlífsmyndband með Kim Kardashian og Ray J lak á netið er enn verið að ræða hvernig það komst þangað.

Í nýrri bók eftir Ian Halperin sem nefnist Kardashian Dynasty segir höfundurinn að Kris Jenner, móðir Kim Kardashian, og fjölskylda hennar hafi í raun lekið myndbandinu á netið.

Heimildarmenn Halperin segja að Kris Jenner hafi gert samning við Vivid Entertainment árið 2003.

„Það var Kris [Jenner] sem sá um samninginn og hún ber ábyrgð á því að myndbandið leit dagsins ljós,“ segir heimildarmaður hans.

Vivid varð að greiða Kim Kardashian fimm milljónir dollara í bætur eftir að myndbandið kom fram en málið var víst ekki svo auðvelt.

Heimildarmaður höfundarins segir að Kim hafi fengið ráðleggingar frá sérfræðingum um það hvernig hún gæti orðið heimsfræg. Það að leka kynlífsmyndbandi ætti að duga til.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×