Innlent

Dómur Hæstaréttar gæti snert þriðjung heimila í landinu

Hjónin sem unnu mál gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum í Hæstarétti í gær fá nærri 30 prósent af eftirstöðvum lánsins leiðrétt eftir dóminn. Dómurinn í gær gæti snert allt að þriðjung allra heimila í landinu.

Hæstaréttardómurinn í gær sneri fjármálum banka og heimila landsins á hvolf þegar hann skar úr um það að Frjálsa fjárfestingarbankanum hefði verið óheimilt að reikna óverðtryggða Seðlabankavexti aftur í tímann á gengislán hjóna í Vesturbænum. Fréttastofa hefur hringt í urmul fólks í fjármálakerfinu í dag - og segja má að flest hafi þau samtöl verið á einn veg: við vitum ekki hvaða þýðingu þessi dómur hefur og hvort að öll lán sem voru gengistryggð falli undir hann. Enginn af þeim reiknimeisturum sem fréttastofa ræddi við treysti sér til að reikna út hvað þetta getur til dæmis þýtt fyrir fjölskyldu með bílalán -

Það eina sem er nokkuð ljóst á þessari stundu er hvaða áhrif dómurinn hefur á þau Sigurð Hrein Sigurðsson og Elvíru Mendez Pinedo sem unnu mál sitt gegn bankanum í gær.

Þau hjónin tóku 19,2 milljónir að láni í janúar 2006 - til að kaupa parhúsið sitt í vesturbænum. Síðan þá hafa þau greitt af því skilvíslega, samanlagt 10 og hálfa milljón króna. Lánið stóð í 43,2 milljónum áður en það var endurútreiknað árið 2011 í samræmi við árnapálslögin. Í dag eru eftirstöðvar lánsins 23,8 milljónir króna.

En eftir hæstaréttardóminn í gær lítur út fyrir - samkvæmt þeim sérfræðingum sem fréttastofa ræddi við - að þær muni lækka um 6 og hálfa milljón króna. Það þýðir 27% leiðrétting á láninu sem lækkar þá í 17,3 milljónir um það bil.

Engin leið var hins vegar að fá úr því skorið í dag hvort þær tugþúsundir heimila sem einnig eru með lán sem voru dæmd ólögleg geti notað þessa niðurstöðu sem vísbendingu um sína stöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×