Ísland ein þunglyndasta þjóð Evrópu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 13. mars 2017 09:55
Ísland er í fjórða sæti yfir fjölda fólks með þunglyndiseinkenni, samkvæmt evrópsku heilsufarsrannsókninni 2015 sem birt er á vef Hagstofunnar í dag. Þunglyndiseinkenni eru algengari hjá ungum konum á Íslandi en í öðrum Evrópulöndum. Tæplega níu prósent fólks á Íslandi mældist með þunglyndiseinkenni, en það er fjórða hæsta hlutfallið af þeim löndum sem tóku þátt í rannsókninni. Þá voru rúm fjögur prósent með mikil einkenni og er Ísland þar með næsthæsta hlutfallið. Flestir mældust með þunglyndiseinkenni í Ungverjalandi, rúm tíu prósent, en fæstir í Tékklandi, rúm þrjú prósent. Af Norðurlöndunum var þetta hlutfall hæst í Svíþjóð, eða rúm níu prósent, en lægst í Finnlandi, rétt undir fimm prósentum. Noregur og Danmörk voru á svipuðu róli með rúmlega sex prósent. Þá eru konur á Íslandi líklegri til að hafa þunglyndiseinkenni en karlar, tæp ellefu prósent á móti sjö prósent karla. Fleiri ungar konur á aldrinum 15-24 ára mældust með þunglyndiseinkenni á Íslandi en í nokkru öðru Evrópulandi, eða tæp átján prósent. Svíþjóð og Danmörk komast næst Íslandi með um fimmtán prósent. Hlutfallið er lægst á Kýpur og í Litháen, kringum 0,5 prósent, og Tékklandi, tæplega eitt prósent. Evrópska heilsufarsrannsóknin er samræmd rannsókn á heilsufari og heilsutengdri hegðun sem hagstofur á Evrópska efnahagssvæðinu framkvæma. Rannsóknin var framkvæmd á Íslandi haustið 2015. Í úrtaki voru 5.700 einstaklingar sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá. Af þeim svaraði 4.001 einstaklingur sem þýðir að svarhlutfallið var 70,2 prósent.
Mest lesið Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Innlent Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana Erlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Innlent Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Innlent „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Innlent Glerbrot í lauginni Innlent Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Innlent Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flýgur aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Vilhjálmur Hjálmarsson kjörinn varaformaður ÖBÍ „Ef hann hefði verið einn þá hefði þetta getað farið miklu verr“ Bátarnir frá eldgosinu í Vestmannaeyjum málaðir á vita Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? „Þegar hægrið fær að ráða ferðinni óheft og án alls taumhalds fer illa“ Fagna löngu tímabærri breytingu Átök í miðausturlöndum, ný forysta VG og mállýska unga fólksins Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Biskup Íslands predikar í Vík á 90 ára afmæli kirkjunnar Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Landsfundur ræðir stjórnarslit og nýjum reglum um blóðgjöf fagnað Tveir stórir skjálftar í Bárðarbunguöskjunni Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Þorgerður Katrín: Enginn ráðskonurass undir fólki í Viðreisn Sjá meira