Menning

Las upp úr nýju ævintýri

Höfundur Harry Potter-bókanna hefur handskrifað sjö eintök af ævintýrinu The Tales of Beedle the Bard.
Höfundur Harry Potter-bókanna hefur handskrifað sjö eintök af ævintýrinu The Tales of Beedle the Bard.

J.K. Rowling, höfundur Harry Potter-bókanna, las fyrir skömmu upp úr nýrri bók sinni, The Tales of Beedle the Bard, fyrir tvö hundruð skólabörn á þjóðarbókasafninu í Skotlandi.

Rowling handskrifaði og myndskreytti sjö eintök af bókinni og ætlar að bjóða þau upp til góðgerðarmála. Eintakið sem lesið verður upp úr á bókasafninu er í eigu Barry Cunningham, fyrsta ritstjóra Rowlings.

Harðir Harry Potter-aðdáendur ættu að kannast við Beedle the Bard því fjallað er um ævintýrið í sjöundu og síðustu Potter-bókinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.