Sjötti skútumaðurinn í gæslu 16. október 2007 21:46 TUGIR KÍLÓA Sjötti karlmaðurinn hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna skútumálsins á Fáskrúðsfirði. Hann er grunaður um aðild að því. Myndin er af stærstum hluta efnanna sem lögregla lagði hald á í málinu.
Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna stóra smyglmálsins sem kom upp á Fáskrúðsfirði 21. september síðastliðinn. Þetta er sjötti maðurinn sem situr nú í gæsluvarðhaldi hér á landi vegna skútumálsins svokallaða. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti að sjötti maðurinn sæti nú í gæsluvarðhaldi. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig frekar um málið við Fréttablaðið að öðru leyti en því að rannsókn þess miðaði vel, en með hana fer fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var sjötti maðurinn handtekinn í fyrradag. Hann hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til þriðjudagsins 23. október. Alls voru um 60 kíló af fíkniefnum gerð upptæk í aðgerðum lögreglunnar þegar hún kom upp um þessa umfangsmiklu smygltilraun, um 15 kíló af e-töflum og um 45 kíló af amfetamíni. Þar að auki fundust tvö kíló af amfetamíni í Færeyjum. Gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum sem setið hafa inni hér vegna málsins að undanförnu rennur út á morgun.- jss
Pólstjörnumálið Mest lesið Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Árleg æfing í vonbrigðum“ Innlent Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Innlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Innlent Fleiri fréttir Vara við gosmengun á nærliggjandi svæðum í dag Þrír menn handteknir eftir að þeir ruddust inn á heimili „Árleg æfing í vonbrigðum“ Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Sjá meira