„Við eigum kannski ekki tvo milljarða í cash-i“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. mars 2020 14:00 Héraðsdómur hefur dæmt Útgerðarfélag Reykjavíkur til að reiða af hendi tvo milljarða króna. Þorskurinn skreytir einnar krónu myntina. Vísir/Vilhelm
Svo virðist sem að endurrit af hljópupptökum af símtölum á milli Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims, sem nú heitir Útgerðarfélag Reykjavíkur, og forstöðumanns gjaldeyrisviðskipta hins fallna banka Glitnis í október 2008 hafi skipt sköpum í máli þrotabúi Glitnis gegn útgerðarfélaginu. Í símtali á milli Guðmundar og forstöðumannsins þann 1. október það ár kom meðal annars fram að Brim ætti „kannski ekki tvo milljarða“ til að gera upp samningana sem deilt var um. Dómur í málinu féll í gær þar sem Útgerðarfélag Reykjavíkur var dæmt til að greiða þrotabúi Glitnis tvo milljarða vegna 31 afleiðusamnings sem gerðir voru á milli Brims og Glitnis árið 2008, ætlaða til að verja félagið fyrir gengisbreytingum í rekstri. Þrotabúið höfðaði málið gegn Útgerðarfélagi Reykjavíkur árið 2012 en þá bar það nafnið Brim. Það félag sem nú ber nafnið Brim hét áður HB Grandi en Útgerðarfélag Reykjavíkur, sem áður hét Brim, er stærsti eigandi Brims, áður HB Grandi. Sökuðu starfsmenn um að hafa klippt eða fjarlægt sjö sentimetra af samningunum Hart hefur verið tekist á um málið í gegnum tíðina en Útgerðarfélagið sakaði meðal annars starfsmenn þrotabús Glitnis um að hafa klippt eða fjarlægt sjö sentimetra neðan af öllum samningum svo að þeir myndu líta út á annan veg en þeir gerðu. Kærði félagið það til lögreglu. Þá var Ólafi Eiríkssyni, lögmanni þrotabús Glitnis, veitt áminning fyrir brot á siðareglum lögmanna vegna bréfaskrifta til fyrrverandi starfsmanns Brims í tengslum við málið.Í stuttu máli snerist dómsmálið um að Glitnir krafðist þess að Útgerðarfélagið myndi efna þá samninga sem það taldi hafa verið gerða á milli ÚR, þá Brim, árið 2008.Útgerðarfélagið taldi hins vegar að í fyrsta lagi hafi starfsmaðurinn sem undirritaði samningana ekki haft umboð til þess. Í öðru lagi hafi framlenging á samningunum, í aðdraganda hrunsins í okóber, hvorki verið samþykkt af Útgerðarfélaginu né hafi þeir verið undirritaðir. Guðmundur Kristjánsson er stærsti eigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur.Vísir/Vilhelm Ræddu um samningana í aðdraganda hrunsins Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að starfsmaðurinn, þáverandi fjármálastjóri, hafi haft umboð til að gera samningana til að byrja með og að samningarnir hafi verið framlengdir með vitund og vilja Guðmundar Kristjánsonar, forstjóra Brims. Þar virðast endurritin af hljóðupptökunum hafa skipt sköpum, líkt og rakið er í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Í dóminum er meðal annars vitnað í símtal á milli Guðmundar og Rúnars Jónssonar, forstöðumanns gjaldeyrisviðskipta Glitnis, frá 1. október 2008, þar sem rætt er um samninga sem væru á „gjalddaga eftir helgi“ og hvaða möguleikar væru í stöðunni. Töluvert tap var komið á þá samninga vegna gengishruns íslensku krónunnar. Nokkrum dögum síðar féllu íslensku bankarnir. Brim var í þröngri stöðu Í símtalinu sagði Guðmundur að framundan væri gjalddagi upp á „400 og eitthvað milljónir“. Upplýsti Rúnar Guðmund um hvað væri hægt að gera, meðal annars þann möguleika að loka samningunum ef krónan myndi ekki styrkjast. Sagði Guðmundur þann möguleika vera ólíklegan þar sem Brim ætti ekki nægja fjármuni til að greiða Glitni til að loka samningnum. Í dómi héraðsdóms er eftirfarandi haft eftir honum: [V]ið eigum kannski ekki tvo milljarða í cash-i Daginn eftir ræddu Guðmundur og Rúnar aftur saman þar sem fram kom í máli Guðmundar að hann yrði að semja þar sem „fullt af samningum“ væru framundan á gjalddaga. Ræddu þeir um hvernig hægt væri að leysa málið.Í dómi héraðsdóms segir að þessi samtöl sýni meðal annars fram á að útgerðarfélagið hafi verið vel meðvitað um samningana sem deilt var um og að þeir væri í miklu tapi. Guðmundur og félög hans hafa í gengum tíðina verið umsvifamikil í sjávarútveginum.Vísir/Vilhelm Dómurinn benti á að ekki hafi verið gerðar athugasemdir við framlenginguna Héraðsdómur leit einnig til þess að þann 8. október 2008 sendi aðstoðarmaður Guðmundar tölvupóst til starfsmanns þar sem óskað var eftir kvittunum vegna „swap viðskipta frá því í gær og í dag V/BRIM“. Leit héraðsdómur svo á að þarna væri verið að ræða um framlengingu á samningunum sem deilt var um í dómsmálinu. Þá er einnig bent á að útgerðarfélagið hafi ekki gert neinar athugasemdir við framlengingu þessara viðskipta.„[E]kki eftir að starfsmaður stefnda fékk kvittanir sendar 8. október 2008 vegna viðskiptanna, ekki eftir að starfsmenn stefnda móttóku samningana og auðkenndu fyrir skjalakerfi stefnda, ekki eftir að starfsmaður stefnda sótti umrædda samninga í heimabanka stefnda eða eftir að forstjóri stefnda fékk sent yfirlit frá stefnanda yfir alla „opna gjaldeyrissamninga“ í tölvupósti 28. október 2008, þar sem tap þeirra er tilgreint rúmir tveir milljarðar króna,“ líkt og segir í dómi héraðsdóms.Þá segir einnig í dómi héraðsdóms að ætla verði að Útgerðarfélaginu, umsvifamiklu sjávarútvegsfyrirtæki með miklar tekjur í erlendri mynd, hafi átt að verða kunnugt um að viðskipti af þessum toga, svokallaðar gengisvarnir, væru áhættusamar.Útgerðarfélagið var því sem fyrr segir dæmt til að greiða þrotabúi bankans tvo milljarða auk tólf milljóna í málskostnað.Dóm héraðsdóms má lesa hér.
Dómsmál Sjávarútvegur Mest lesið Staðreyndum snúið á hvolf til að eigna ríkisstjórninni verðbólguna Viðskipti innlent Seðlabankinn hafi ekki önnur úrræði en að lækka vexti Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Viðskipti innlent Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Viðskipti innlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf Fleiri fréttir Staðreyndum snúið á hvolf til að eigna ríkisstjórninni verðbólguna Seðlabankinn hafi ekki önnur úrræði en að lækka vexti Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“ Spá áframhaldandi óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku Tryggja sér 650 milljóna króna fjármögnun „Allt að því galið“ að taka ekki þátt í séreignarsparnaði Þórhallur ráðinn fjármálastjóri SORPU Ætla að lækka verð með ungverskum tannlæknum Hefja sölu áfengis á næstu tveimur vikum Atvinnuleysi mest á Suðurnesjum og minnst á Norðurlandi vestra Afnám tolla myndi gera út af við íslenskan landbúnað Bjóða upp á langlægsta verðið en samkeppnisaðilar óttast ekkert Upplifunin verði eins og að fara í búð í útlöndum Kominn tími til að Hopp og Zolo fái samkeppni Evrópska rafhlaupahjólaleigan Bolt opnar á Íslandi í dag Stórt skref stigið í yfirtöku JBT á Marel Klara nýr forstöðumaður hjá RSV „Komin í hóp fullorðnu félaganna“ Play mætt á aðalmarkað Kauphallar Meiri harka í framkvæmdum en áður og fleiri mál fyrir dóm Stefnir í helmingshækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði Allt að 43 prósent lægra matvöruverð án tolla Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu Gjaldþrotið nam 780 milljónum króna Stefna að því að opna Starbucks á fyrri hluta næsta árs Frá Bjarna Benediktssyni til Bestseller Play í Kauphöllina Skemmtistaðurinn 22 opnaður á nýjan leik Starbucks kemur til Íslands Starbucks opnar á Íslandi Sjá meira