Lífið

Reitir að hefjast á Siglufirði

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Hluti af verki sem hét "The Smell of Money" sem vísaði líklega í gömlu síldarbræðsluna í bænum.
Hluti af verki sem hét "The Smell of Money" sem vísaði líklega í gömlu síldarbræðsluna í bænum. Vísir/Reitir
Þessa daganna fer fram mikil undirbúningsvinna á Siglufirði vegna Reita. Um er að ræða árlegan skapandi viðburð sem haldin hefur verið frá 2012 og ekki má kalla listahátíð.



Verkefnastjórar Reita Ari Marteinsson og Arnar Ómarsson.Vísir/Reitir
„Það halda rosalega margir að þetta sé eingöngu listaverkefni eða listahátíð sem er ótrúlega eðlilegur misskilningur,“ útskýrir Arnar Ómarsson, annar tveggja verkefnastjóra Reita sem hefjast á laugardaginn. „Við höfum oftast talað um þetta sem þverfaglega tilraunakennda smiðju. Það eru alls konar fólk sem tekur þátt. Listamenn eru ekkert endilega í forgrunni. Okkur finnst það of þröngur rammi að setja þetta bara undir listir.“

Þátttakendur vandlega valdir

Smiðjurnar standa yfir í tvær vikur og lýkur Reitum með uppskeruhátíð sem haldin er 2. Júlí. Á Reitum eru gerðar hinar ýmsu samstarfstilraunir en þátttakendur í ár eru 21 talsins og koma frá 12 löndum. Vandlega er valið úr hópi umsækjanda ár hvert.

„Við reynum að fá eins mismunandi fólk og við getum. Helst frá mismunandi menningarheimum. Við viljum bara blanda öllu saman og fá dansara, smiði, arkitekta, viðskiptafólk eða myndlistarmenn til þess að gera eitthvað saman.“

Siglufjörður er umfangsefnið

Vinnulag á Reitum er nokkuð einfalt. Allt sem skapað er verður að tengjast Siglufirði á einhvern hátt og ekki má koma með fyrirframtilbúna hugmynd í heilabúinu. Þátttakendur eru svo hvattir til þess að vinna í samstarfi við aðra.

Á þeim fjórum árum sem Reitir hafa verið haldnir hafa sprottið upp ýmis konar hugmyndir og listaverk unnin. Þar má nefna stuttmyndir, símaöpp, teikningar arkitekta af skýjakljúfum fyrir bæinn, dansverk og hin ýmsu verk sem lífgað hafa upp á bæjarlífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×