Leikmenn PSG rifust: „Þú gefur boltann bara til baka“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. maí 2019 12:00 „Hafðu þig hægan, kútur.“ vísir/getty
Neymar og Julian Draxler, leikmönnum Paris Saint-Germain, lenti saman eftir tap liðsins fyrir Montpellier í frönsku úrvalsdeildinni í síðustu viku. PSG komst tvisvar yfir í leiknum en endaði á því að tapa, 3-2. Neymar og Draxler rifust heiftarlega í búningsklefanum eftir leik. Neymar tók ekki vel í kvartanir Draxlers og á að hafa öskrað á liðsfélaga sinn: „Þú hefur ekki efni á að tala svona við mig. Þú gefur boltann bara til baka.“ Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri PSG, og Antero Henrique, íþróttastjóri félagsins, þurftu að skilja Neymar og Draxler að áður en þeir létu hnefana tala. Allt hefur gengið PSG í óhag að undanförnu. Liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sex deildarleikjum sínum, tapaði fyrir Rennes í bikarúrslitum og féll úr leik fyrir Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Þrátt fyrir slakt gengi á undanförnum vikum er PSG löngu búið að tryggja sér franska meistaratitilinn. Liðið hefur orðið franskur meistari sex sinnum á síðustu sjö árum. Neymar er nýbyrjaður að spila aftur með PSG eftir meiðsli. Brassinn, sem er dýrasti fótboltamaður allra tíma, hefur skorað 22 mörk í 25 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Enginn leikmaður hefur leikið fleiri leiki fyrir PSG í vetur en Draxler (41). Þjóðverjinn kom til PSG frá Wolfsburg 2017.
Franski boltinn Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Kristian Nökkvi með mark og stoðsendingu Chelsea tapaði óvænt stigum á meðan Hlín tapaði fyrir Rauðu djöflunum Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Kristianstad byrjar vel í bikarnum Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Draumainnkoma Dags Welbeck skaut Brighton áfram Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Sjáðu: Glæsilegt sigurmark Jóhanns Bergs gegn Ronaldo Mateta líður vel þrátt fyrir tæklingu í andlitið Hákon Arnar kom inn af bekknum í erfiðum leik í París Real Madríd varð af mikilvægum stigum í titilbaráttunni Jafnt í toppslagnum á Ítalíu Man City sterkari í síðari hálfleik og komið áfram „Nýja hetjan“ Benóný Breki tryggði sigurinn með sínum fyrstu mörkum Venezia hélt jöfnu gegn Atalanta Fyrrverandi markvörður Hattar lagði upp mark í toppslagnum Fólskulegt brot markvarðar Milwall þegar Palace fór áfram Annað bikarævintýri hjá Júlíusi? „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Auðun tekur við Þrótti Vogum Messi var óánægður hjá PSG „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Hefur Amorim bætt Man United? Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Asensio skaut Villa áfram Albert kom við sögu í naumum sigri Sjá meira