Innlent

Þríeykinu verður ekki vísað úr þingflokknum

Steingrímur hyggst ekki mæla fyrir því að Lilju, Atla og Ásmundi verði vísað úr þingflokki VG.
Steingrímur hyggst ekki mæla fyrir því að Lilju, Atla og Ásmundi verði vísað úr þingflokki VG.
„Ég mun ekki mæla með því að neinum verði vísað úr þingflokknum enda er það ekki í okkar lögum að gera það. Það eru allir velkomnir í okkar þingflokk sem vilja vinna þar og vinna með okkur. Við fögnum öllum stuðningsmönnum ríkisstjórnar sem eru það í reynd," sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, í Kastljósi í kvöld.

Þar var hann spurður út í stöðu Lilju Mósesdóttur, Atla Gíslasonar og Ásmundar Einars Daðasonar innan þingflokks Vinstri grænna. Þremenningarnir sátu hjá við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins í dag sem var samþykkt með minnstum mögulegum meirihluta á Alþingi.

Steingrímur sagði að um stóran og alvarlegan atburð væri að ræða. „Það er auðvitað fyrst og fremst þeirra að svara hvernig þau telji sína stöðu nú vera gagnvart ríkisstjórninni eða okkur sem þingflokki."


Tengdar fréttir

Þrír þingmenn VG styðja ekki fjárlagafrumvarpið

Þrír þingmenn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs munu ekki styðja fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Atkvæðagreiðsla um frumvarpið hófst laust eftir klukkan ellefu í morgun. Þingmennirnir sem telja sig ekki geta stutt frumvarpið eru Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason.

Framtíð stjórnarsamstarfsins í óvissu

Framtíð stjórnarsamstarfsins er í óvissu eftir að þrír þingmenn Vinstri grænna sátu hjá við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins í dag, sem var samþykkt með minnstum mögulegum meirihluta á Alþingi. Fjármálaráðherra segir afstöðu þingmannanna vonbrigði og forsætisráðherra segir ekki ljóst hvort hægt sé að treysta á stuðning þremenninganna í framtíðinni.

Meira skorið niður í velferðarmálum en í stjórnsýslunni

Á sama tíma og skorið er verulega niður í mörgum mikilvægum málaflokkum þá er lítið skorið niður í æðstu stjórnsýslu ríkisins, segja þau Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason í yfirlýsingu sem þau samþykktu fyrir atkvæðagreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag.

Steingrímur vonsvikinn með flokksfélagana

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og formaður VG, segist hafa orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum með að þrír þingmenn flokksins skuli hafi ákveðið að sitja hjá í afgreiðslu um fjárlagafrumvarpið í dag. Fjárlögin voru samþykkt með 32 atkvæðum en 31 þingmaður sat hjá, þar á meðal þingmenn VG, þau Lilja Mósesdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason.

Fjárlagafrumvarpið samþykkt

Þrjátíu og tveir þingmenn greiddu fjárlagafrumvarpinu atkvæði sitt, en atkvæðagreiðslu lauk laust eftir klukkan eitt í dag. Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, hafði fyrirfram gert grein fyrir því að hún og samflokksmenn hennar, Atli Gíslason og Ásmundur Einar Daðason, myndu ekki greiða frumvarpinu atkvæði sitt. 31 þingmaður sat hjá við atkvæðagreiðsluna en enginn greiddi atkvæði gegn frumvarpinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×