Innlent

Seinheppinn þjófur líklega fótbrotinn eftir innbrot

Þjófur sem reyndi að brjótast inn í fyrirtæki í austurborginni í nótt var heldur seinheppinn.

Þjófurinn, karl um þrítugt, hafði brotið rúðu í útidyrahurð og var á leið inn i húsið þegar til hans sást. Maðurinn tók þá til fótanna en komst ekki langt því hann datt og lá óvígur eftir.

Hinn óprúttni aðili var enn sárþjáður þegar lögreglan kom á vettvang en talið var að hann hefði fótbrotnað.

Manninum, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, var því ekki ekið í fangageymslu heldur strax komið undir læknishendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×