Erlent

Blake Edwards er látinn

Bandaríski leiksstjórinn Blake Edwards er látinn, 88 ára að aldri. Edwards lést úr lungnabólgu og var kona hans, leikkonan Julie Andrews honum við hlið þegar hann hélt yfir móðuna miklu.

Á löngum ferli leiksstýrði Edwards mörgum af frægustu gamanmyndum síðustu aldar en á ferilskránni eru myndir á borð við Pink Panther, Breakfast at Tiffanys, Victor/Victora og 10.

Edwards var heiðraður fyrir ævistarf sitt á Óskarsverðlaunaafhendingunni árið 2004.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×