Erlent

22 fórust í flugslysi í Nepal

22 létu lífið, eða allir um borð, þegar flugvél af gerðinni DeHavilland Twin Otter hrapaði til jarðar í Nepal í gær.

Vélin var í áætlunarflugi milli Lamidanda og Kathmandu þegar samband rofnaði við hana. Leitarsveit fann brak vélarinnar í morgun utan í fjallshlíð um 150 kílómetra austur af Kathmandu.

Einn Bandaríkjamaður var um borð í vélinni en hinir 21 voru Nepalar, þar af 3 áhafnarmeðlimir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×