Erlent

Verðmætasta jólatré í heimi er í Abu Dhabi

Mynd/afp

Glæsihótel í Arabísku furstadæmunum stærir sig nú af því að vera með dýrasta jólatré heimsins í anddyri hótelsins. Hóteleigandinn fullyrðir að tréð sé metið á heilar ellefu milljónir dollara, enda er það alsett dýrindis skartgripum. Langflestir íbúar Arabísku furstadæmanna eru múslimar og tíðkast ekki í þeim sið að setja upp jólatré. Hótelstjórinn segir að landið sé hinsvegar afar frjálslynt og býst ekki við neinum vandræðum vegna þessa.

Tréð er engin smásmíði, þrettán metrar á hæð og fjórir öryggisverður gæta þess að enginn steli skartgripunum á meðan tréið fær að standa yfir jólahátíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×