Innlent

„Gísli Marteinn er mjög lélegur bítboxari“

„Gísli Marteinn er náttúrulega hress náungi og er búinn að vera í sjónvarpi. Hann stóð sig eins og hetja. Vanur sjónvarpsmaður og eins allir stjórnmálamenn vanur að ljúga. Að ljúga er að leika," segir leikstjórinn Ágúst Bent.

Steindinn okkar snýr aftur á Stöð 2 með vorinu og eru tökur á nýrri þáttaröð í fullum gangi. En í henni fær Steindi meðal annars borgarfulltrúann Gísla Martein Baldursson til að „bítboxa“. Rætt var við borgarfulltrúann, Steinda, Helga Seljan og Ágúst Bent í Íslandi í dag.

„Gísli Marteinn er mjög lélegur bítboxari," segir Steindi. Hægt er að horfa á innslagið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×