Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar

Fimm ný tilfelli af kórónuveirunni voru greind í dag og eru staðfest smit hér á landi því orðin fjórtán. Einn þeirra smituðu starfar á Landspítalanum og eru um tuttugu starfsmenn þar í sóttkví.

Yfirmaður smitsjúkdóma hefur áhyggjur af því að veiran lami starfsemina. Nánar verður fjallað um kórónuveiruna í fréttum Stöðvar tvö klukkan hálf sjö og meðal annars rakið hvernig olíuverð á Íslandi hefur lækkað nokkuð skarpt vegna veirunnar.

Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×