Innlent

Halldór Sævar Guðbergsson nýr formaður Öryrkjabandalagsins

Halldór Sævar Guðbergsson.
Halldór Sævar Guðbergsson.
Halldór Sævar Guðbergsson var kjörinn formaður Öryrkjabandalags Íslands á aukafundi milli aðalfunda ÖBÍ sem haldinn var síðdegis í dag.

Halldór hefur verið formaður Blindrafélagsins frá 2005, en hann var einnig formaður þess árin 1999-2001, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ÖBÍ

„Halldór sem er fæddur 1971, er stúdent af félagsfræðibraut MH 1993 og lauk íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1995. Að námi loknu hefur hann m.a., unnið sem íþróttakennari, sundþjálfari hjá Íþróttfélagi fatlaðra, markaðsfulltrúi Blindrafélagsins og sinnt fullorðinsfræðslu fatlaðra," segir í tilkynningunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×