Í dag klukkan 14 voru afhent verðlaun í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir bestu myndir ársins 2019. Veitt voru verðlaun í sjö flokkum auk bestu myndar ársins.

Mynd ársins 2019 tók Golli / Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari Iceland Review og er það mynd frá vorferð Jöklarannsóknarfélags Íslands á vatnajökul.
„Áhrifarík og táknræn mynd fyrir loftslagsbreytingar af manna völdum. Myndin sýnir hversu smár maðurinn er í samanburði við náttúruna og síbreytilegan jökulinn frá áhugaverðu sjónarhorni,“ segir í umsögn dómnefndar.

Sigtryggur Ari Jóhannsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, átti bestu mynd í fréttaflokki. Á myndinni sjást nemendur mótmæla aðgerðaleysi í loftslagsmálum á hinum vikulegu loftslagsverkföllum sem fram fóru síðasta vetur.
„Myndin fangar það málefni sem hefur einna mest verið í umræðunni á Íslandi og heiminum öllum. Skilaboðin koma skýrt fram í myndinni og sýna að ungt fólk lítur til framtíðar,“ segir í umsögn dómnefndar.

Kristinn Magnússon átti íþróttaljósmynd ársins en á myndinni sést Anton Sveinn McKee stinga sér til sunds er hann keppti í 50 metra bringusundi. Hann vann til gullverðlauna þegar hann synti á 28,68 sekúndum.
„Mynd sem fangar kjarna íþróttaljósmyndunar. Góð myndbygging á hárréttu augnabliki,“ segir í umsögn dómnefndar.

Mynd Aldísar Pálsdóttur var valin tímaritamynd ársins.
Í umsögn dómnefndar segir að myndin sé vel útfærð tískumynd með fallegri myndlýsingu og góðri myndbyggingu. Módelið sé fangað á grafískan hátt.

Umhverfismynd ársins var mynd Eggerts Jóhannessonar frá Ískönnunarleiðangri Landhelgisgæslunnar.
„Tignarlegur ísjaki sem flýtur um í þokunni gefur okkur tilfinningu fyrir því sem er að tapast en einnig fyrir styrk og mikilfengleika náttúrunnar,“ segir í umsögn dómnefndar.

Heiða Helgadóttir fékk verðlaun fyrir mynd í flokknum Daglegt líf mynd ársins.
„Tímalaus mynd sem sýnir kuldalegan veruleika íslenskra smábátasjómanna,“ segir í umsögn dómnefndar en á myndinni sést Ragnar Emilsson, skipstjóri á Mána II, sem hefur stundað sjómennsku í 35 ár.

Þá fékk Heiða Helgadóttir einnig verðlaun fyrir portrettmynd ársins af Sif Baldursdóttur.
Að mati dómnefndar var myndin táknræn og marglaga portrett mynd, vel innrömmuð sem leyfir áhorfandanum að upplifa og túlka sjálfur.

Golli fékk verðlaun fyrir myndaseríu ársins frá vorferð Jöklarannsóknarfélags Íslands á Vatnajökul.
Myndaserían þótti vel uppbyggð og sameinaði fallegar myndir og heildstæða frásögn sem á erindi við alla. Myndaröðin sýni menn í tengslum við náttúruna frá ýmsum sjónarhornum.

Sýningin verður opin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur frá 11. Maí til 1. júní. Fjöldi gesta í sýningarsal hverju sinni takmarkast við 40 manns og virða þarf 2ja metra regluna.