Annað verðhrun á olíu - viðskiptin stöðvuð 12. maí 2011 08:38
Annað verðhrun varð á heimsmarkaðsverði á olíu á markaðinum í New York í gærkvöldi. Vegna hrunsins voru viðskiptin á hrávörumarkaðinum Nymex stöðvuð í fimm mínútur. Verð á Brent olíunni féll um 3,5% og fór niður í 113 dollara á tunnuna undir lok viðskiptadagsins að því er segir í frétt um málið á Reuters. Verð á bandarísku léttolíunni féll um 5% og fór hún niður í rúma 97 dollara á tunnuna. Þetta hrun kemur í kjölfar þess að olíuverðið lækkaði um 10% í síðustu viku og var það mesta vikulækkun í sögunni mælt í dollurum. Svo virðist sem taugaveiklun hafi ráðið einhverju um verðfallið í gærkvöldi. Einnig kom til að margir spákaupmenn þurftu að losa sig úr stöðum sínum á markaðinum. Svo miklar sveiflur voru um tíma á olíuverðinu að eigendur Nymex tóku þá ákvörðun að stoppa viðskiptin tímabundið.
Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Ritúalið verður að Skjóli Viðskipti innlent Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Engin hópuppsögn í júlí Viðskipti innlent Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira