Innlent

Tveir hælisleitendur tengdust hryðjuverkasamtökum

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þann 30. janúar síðastliðinn birti greiningardeild Ríkislögreglustjóra nýtt mat á hættu af hryðjuverkum.
Þann 30. janúar síðastliðinn birti greiningardeild Ríkislögreglustjóra nýtt mat á hættu af hryðjuverkum. Vísir/Valgarður
Tveir einstaklingar sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hér á landi reyndust tengjast hryðjuverkasamtökum. Einstaklingarnir eru farnir úr landi. Þetta staðfestir Ásgeir Karlsson hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra við fréttastofu RÚV.

Þann 30. janúar síðastliðinn birti greiningardeild Ríkislögreglustjóra nýtt mat á hættu af hryðjuverkum. Þar kemur fram að einstaklingar með tengsl við hryðjuverkasamtök hafi komið til Íslands á árunum 2015 og 2016 og óskað eftir alþjóðlegri vernd.

Þá segir einnig að upplýsingar séu fyrir hendi um að Ísland hafi verið notað sem „gegnumstreymisland“ manna frá Norður-Ameríku á leið til og frá þáttöku í bardögum í Mið-Austurlöndum í nafni ISIS.

Niðurstaða greiningardeildarinnar er að hættustig á Íslandi sé metið í meðallagi og hefur hættustigið ekki breyst frá árinu 2015. Hættustig í meðallagi er skilgreint svo: Almennt er talið að ekki sé hægt að útiloka hættu á hryðjuverkum vegna ástands innanlands eða í heimsmálum.

Árið 2016 komu 1133 hælisleitendur til Íslands. Þar af voru um 800 frá löndum Evrópu eða um sjötíu prósent. Lögreglunni er ekki kunnugt um að á Íslandi hafi myndast hópar eða samfélög sem aðhyllast herskáan íslamisma eða annars konar ofbeldisfulla öfgahyggju.

„Sú hætta er fyrir hendi á Íslandi sem annars staðar að áróðursmenn hryðjuverkasamtaka reyni að fá fólk til liðs við þau og hvetji til óhæfuverka. Í því samhengi skal bent á að greiningardeild hefur í fyrri skýrslum um mögulega hryðjuverkaógn hér á landi fremur horft til einstaklinga sem sækja innblástur til öfgasamtaka en til skipulagðra hóp,“ segir í skýrslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×