Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2: „Ég vil ekki bara láta bjarga lífi mínu – ég vil fá að lifa líka“

Ritstjórn skrifar
Einstaklingar sem hljóta heilaskaða fá ekki aðstoð við að fóta sig í lífinu á ný að sögn Guðrúnar Hörpu Heimisdóttur sem hlaut heilaskaða í umferðaslysi árið 2012. Hún segir að það vanti alla langtímameðferð fyrir fólk sem fær heilaskaða en mörg hundruð manns hljóta slíkan skaða árlega á Íslandi

Guðrún Harpa var stödd fyrir utan bílaumboð Heklu að sækja bíl sem hún hafði nýverið keypt. Þá kom annar bíll akandi inn á planið á miklum hraða og ók á kyrrstæðan bíl sem lenti á Guðrúnu. Ökumaður bifreiðarinnar hafði fengið hjartaáfall. Guðrún barst með bílnum í gegnum rúðu inn í umboðið, skall þar í gólfið og bíllinn keyrði yfir fætur hennar og hlaut mikla áverka – m.a. heilaskaða.

Síðan hefur hún glímt við margskonar kvilla – persónuleikabreytingar meðal annars. Hún segir þörf á úrræðum fyrir fólk í hennar sporum, langtímaendurhæfingu fyrir fólk með heilaskaða. Fagfólk tekur undir áhyggjur Guðrúnar Hörpu.

Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2, sem hefjast að vanda klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×