Innlent

Vilja að löglegt verði að móðga erlenda þjóðhöfðingja

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram frumvarp um breytingu á almennum hegningarlögum þess efnis að grein sem leggur viðurlög við því að smána eða móðga erlenda þjóðhöfðingja verði felld úr gildi.

Frumvarpið var fyrst lagt fram á 145. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Samkvæmt frumvarpinu verður 95. grein almennra hegningarlaga lögð niður en hún hljóðar svo:

„Hver, sem opinberlega smánar erlenda þjóð eða erlent ríki, æðsta ráðamann, þjóðhöfðingja þess, fána þess eða annað viðurkennt þjóðarmerki, fána Sameinuðu þjóðanna eða fána Evrópuráðs, skal sæta sektum [eða fangelsi allt að 2 árum. Nú eru sakir miklar og varðar brot þá fangelsi allt að 6 árum.]“

Dæmdur fyrir að kalla Adolf Hitler blóðhund

Í greinargerð með frumvarpinu segir að á undanförnum misserum hafi talsvert verið þrengt að tjáningarfrelsi víða um heim og frelsi blaðamanna skert. Stjórnvöld í einstaka ríkjum hafi reynt að uppræta gagnrýna umræðu.

Er vísað til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu frá árinu 2002 þar sem úrskurðað var að sérstök vernd þjóðhöfðingja væri ónauðsynleg í lýðræðisþjóðfélagi.

Þá segir einnig í greinargerðinni að 95. greinin feli í sér „afar hörð viðurlög við því að smána erlend ríki, þjóðhöfðingja eða þjóðartákn á borð við fána.

Lagaákvæðinu sé sjaldan beitt og er vísað í dóm sem rithöfundurinn Þórbergur Þórðarsson hlaut fyrir að kalla Adolf Hitler blóðhund auk þess sem að skáldið Steinn Steinarr var dæmdur fyrir að smána hakakrossfána þýska nasistaflokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×