Stórskipahöfn í Nuuk markar þáttaskil hjá Grænlendingum Kristján Már Unnarsson skrifar 1. febrúar 2017 21:00
Grænlendingar fá sína fyrstu stórskipahöfn í sumar en hún er talin marka þáttaskil fyrir atvinnulíf landsins. Íslendingar hafa gegnt lykilhlutverki í hönnun og smíði hafnarinnar. Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt frá framkvæmdum í Nuuk. Þróun atvinnulífs í Nuuk líður fyrir þrengslin í gömlu höfninni. Þar ægir saman fiskiskipum af öllum stærðum og gerðum. Samtímis þarf að afgreiða flutningaskipin, bæði þau sem fara á innanlandshafnir og þau sem koma frá Álaborg í Danmörku og það sárvantar pláss fyrir skemmtiferðaskip.En nú sjá Grænlendingar fram á byltingu. Ný gámahöfn er að verða tilbúin og þar skipar íslensk verkfræðiþekking stóran sess. Efla hannaði byggingar og Mannvit annast eftirlit. Aðalverktakar eru danska félagið Per Aarsleff, með hafnarbakka, en dótturfélag þess, Ístak, sér um húsbyggingar. Þarna starfa einnig íslenskir undirverktakar, eins og málarar og plötusmiðir. Þá annast borpramminn Þrymur boranir vegna sprenginga.„Það eru Íslendingar sem eru uppistaðan í byggingavinnunni og síðan að hluta til í jarðvinnunni líka. Til dæmis öll stjórnin í byggingunum er í höndum Íslendinga,“ segir Jón Ingi Georgsson, tæknifræðingur hjá Ístaki, sem titlaður er framleiðslustjóri bygginga á svæðinu. Verkkaupi er hafnarfélag í eigu landstjórnar Grænlands, Sikuki, og þar er Íslendingur varaformaður stjórnar, Haukur Óskarsson. Mest hafa um 60 Íslendingar starfað við hafnargerðina en þeim hefur nú fækkað niður í 20 til 30.Jón Ingi segir verkið hafa gengið þokkalega. Óvæntir þættir hafi helst komið upp við sprengingar fyrir utan en annað hafi gengið eins og við mátti búast. Gömlu hafnarbakkarnir taka aðeins við smærri flutningaskipum en með nýju gámahöfninni geta Grænlendingar sagt að þeir eigi stórskipahöfn. Áætlað er að nýja höfnin verði tekin í notkun í byrjun júlí í sumar.
Tengdar fréttir Íslendingar í lykilstöðum við stækkun hafnarinnar í Nuuk Vonast er til að tvöföldun hafnarinnar í Nuuk, höfuðstað Grænlands, verði lyftistöng fyrir atvinnulíf Grænlendinga. 13. mars 2016 20:15 Þetta mun styrkja tenginguna á milli Íslands og Grænlands Forsvarsmenn Íslendingafélagsins í Nuuk telja að mál Birnu Brjánsdóttur verði til að styrkja tengslin milli Íslendinga og Grænlendinga. 29. janúar 2017 21:30 Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum. 11. september 2012 23:00 Stærsta farþegaskipið um norðvesturleiðina Siglingin markar þáttaskil í sjóferðasögu mannkyns því aldrei fyrr hefur svo stórt farþegaskip siglt þessa leið um heimsskautssvæði norðurslóða. 17. september 2016 15:00 Gujo byggir upp grænlenska þjóð Íslendingur sem búið hefur á Grænlandi í 46 ár segir að það taki tíma að byggja upp þjóð úr fátækt og drykkju. 31. janúar 2017 21:30 Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð. 10. september 2012 20:15 Kaup þriggja risaskipa styrkja tengsl Íslands og Grænlands Eimskip og Royal Arctic Line hafa samhliða undirritað samninga um smíði stærstu flutningaskipa í sögu Íslands og Grænlands. 25. janúar 2017 20:45 Breytingar í sjóflutningum skapa ný störf og tækifæri á Grænlandi Grænlendingar sjá fram á að efnahagslegt sjálfstæði Grænlands muni styrkjast með nýrri höfn í Nuuk og með samstarfssamningum við Íslendinga um sjóflutninga. 30. janúar 2017 21:15 Mest lesið Reikningur tengdur dularfullri Grindavíkur-mynt horfinn sporlaust Viðskipti innlent Ný ríkisstjórn sé að efla erlenda mjólkurframleiðslu Viðskipti innlent Neytendur beri kostnað þess að reka þrjá stóra banka Viðskipti innlent Bankastjórarnir fengu 260 milljónir króna Viðskipti innlent Greiði milljarða í arð í stað þess að lækka vexti til almennings Neytendur Ekki fjárhagslegur grundvöllur fyrir tveimur vínbúðum á Akureyri Viðskipti innlent Samruninn geti skilað auknum sparnaði til neytenda Viðskipti innlent Sjúkur í Downton Abbey og með unglingastæla á kvöldin Atvinnulíf Ísland komið í skammarkrókinn vegna osts Viðskipti innlent Bilun hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bilun hjá Landsbankanum Ekki fjárhagslegur grundvöllur fyrir tveimur vínbúðum á Akureyri Bankastjórarnir fengu 260 milljónir króna Neytendur beri kostnað þess að reka þrjá stóra banka Ný ríkisstjórn sé að efla erlenda mjólkurframleiðslu Reikningur tengdur dularfullri Grindavíkur-mynt horfinn sporlaust Samruninn geti skilað auknum sparnaði til neytenda Bankarnir byrji í brekku Þröstur tekur við Bændablaðinu Árni Friðriksson í loðnu norður af Vestfjörðum „Fyrstu viðbrögðin voru þetta er ekki hægt“ Almenningur fær forgang og lægsta verðið Arion banki vill sameinast Íslandsbanka Getur nú greitt fyrir bensínið með appi Mikilvægur gæðastimpill fyrir verkefni Carbfix í Hafnarfirði Bein útsending: Frumkvöðlar keppast um Gulleggið Ísland komið í skammarkrókinn vegna osts Telja hvorki hættu á jarðskjálftum né áhrifum á vatnsból af Coda Terminal Helga Beck stýrir markaðsmálum Orkusölunnar Félagsmiðstöð, Hitt húsið, FS og Heilsustofnun NLFÍ stofnanir ársins Hækka lágmarksverð mjólkur Bankarnir græddu 88 milljarða í fyrra Kanna einnig jarðveginn fyrir Coda-stöð á Bakka Vogunarsjóðurinn selur sig út úr Skel fyrir tvo milljarða Jóna Dóra til Hagkaups Skattrannsókn leiddi til gjaldþrots Davíðs Smára Forsendur kunni að bresta ef ríkistjórnin nær sínu fram Alvotech vígir Frumuna Jón kaupir Sigurð Gísla út úr IKEA Rannsaka eitt stærsta svindl með landbúnaðarstyrki í sögu ESB Sjá meira
Íslendingar í lykilstöðum við stækkun hafnarinnar í Nuuk Vonast er til að tvöföldun hafnarinnar í Nuuk, höfuðstað Grænlands, verði lyftistöng fyrir atvinnulíf Grænlendinga. 13. mars 2016 20:15
Þetta mun styrkja tenginguna á milli Íslands og Grænlands Forsvarsmenn Íslendingafélagsins í Nuuk telja að mál Birnu Brjánsdóttur verði til að styrkja tengslin milli Íslendinga og Grænlendinga. 29. janúar 2017 21:30
Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum. 11. september 2012 23:00
Stærsta farþegaskipið um norðvesturleiðina Siglingin markar þáttaskil í sjóferðasögu mannkyns því aldrei fyrr hefur svo stórt farþegaskip siglt þessa leið um heimsskautssvæði norðurslóða. 17. september 2016 15:00
Gujo byggir upp grænlenska þjóð Íslendingur sem búið hefur á Grænlandi í 46 ár segir að það taki tíma að byggja upp þjóð úr fátækt og drykkju. 31. janúar 2017 21:30
Íslendingar í klakahöll undir Grænlandsjökli Virkjun sem Ístak er að smíða á Grænlandi við Diskóflóa lengst norðan heimskautsbaugs er stærsta verkefni í fjörutíu ára sögu fyrirtækisins. Þar er sennilega sú Íslendinganýlenda sem fjærst er öðrum byggðum bólum í sannkallaðri klakahöll við bæinn Ilulissat. Fyrri reynsla Ístaksmanna af smíði virkjana á Grænlandi réð miklu þegar Orkustofnun Grænlands fól þeim einnig þetta tólf milljarða króna verk, þótt þeir ættu ekki lægsta boð. 10. september 2012 20:15
Kaup þriggja risaskipa styrkja tengsl Íslands og Grænlands Eimskip og Royal Arctic Line hafa samhliða undirritað samninga um smíði stærstu flutningaskipa í sögu Íslands og Grænlands. 25. janúar 2017 20:45
Breytingar í sjóflutningum skapa ný störf og tækifæri á Grænlandi Grænlendingar sjá fram á að efnahagslegt sjálfstæði Grænlands muni styrkjast með nýrri höfn í Nuuk og með samstarfssamningum við Íslendinga um sjóflutninga. 30. janúar 2017 21:15