Innlent

Glerhált í höfuðborginni og fólk hvatt til að nota mannbrodda

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
„Komum öll heil heim í dag,“ segir lögregla.
„Komum öll heil heim í dag,“ segir lögregla. vísir/anton brink
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar bæði gangandi og akandi við glerahálku í borginni. Er fólk beðið um að huga vel að akstrinum og aka eftir aðstæðum. Þá eru gangandi vegfarendur beðnir um að notast við mannbrodda.

Búist er við að hálkan verði eitthvað fram á morguninn, eða þar til það tekur að hlýna.

„Komum öll heil heim í dag,“ segir lögreglan í tilkynningu til fjölmiðla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×