Erlent

Hverjir eru Tsarnaev-bræður?

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Dzhokhar (t.v.) og Tamerlan Tsarnaev.
Dzhokhar (t.v.) og Tamerlan Tsarnaev.
Allt er á öðrum endanum í Boston, en lögregla og sérsveitarmenn leita að hinum nítján ára gamla Dzhokhar Tsarnaev, öðrum þeirra sem grunaðir eru um að hafa staðið á bak við sprengjuárásina í Boston-maraþoninu á mánudag.

26 ára gamall bróðir hans, Tamerlan Tsarnaev sem einnig er grunaður um aðild að málinu, var skotinn til bana af lögreglu í skotbardaga við MIT-háskóla í Cambridge í morgun.

Fjölmiðlar vestra reyna nú að púsla saman bakgrunni bræðranna, en þeir eru upprunalega frá Téténíu í Rússlandi og sagðir hafa flutt til Bandaríkjanna fyrir nokkrum árum.

Dzhokhar, sem er fæddur 22. júlí 1993, hlaut 2500 dala námsstyrk við Cambridge Ringe and Latin School árið 2011. Lýsir nágranni honum sem „yndislegum dreng“ á meðan vinur hans segir hann vera „bara venjulegan bandarískan ungling“. Skólabróðir Dzhokhar segir hann vera trúðinn í bekknum, og fyrrverandi skólasystkini hans lýsa honum sem vingjarnlegum og afslöppuðum.

Hann er sagður hafa fengið bandarískan ríkisborgararétt þann 11. september í fyrra.

Twitter-færslur sem taldar eru vera frá Dzhokhar Tsarnaev.
Ramzan Karimov, leiðtogi Téténíu, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins:

„Atburðirnir í Boston eru hræðilegir. Við höfum áður vottað íbúum borgarinnar samúð okkar og Bandaríkjanna allra. Allar tilraunir til að tengja bræðurna, séu þeir sekir, við Téténíu eru til einskis. Þeir ólust upp í Bandaríkjunum og skoðanir þeirra mótuðust þar. Það er nauðsynlegt að leita að rótum illskunnar í Bandaríkjunum. Við vonumst til að þeir sem slösuðust muni ná bata og við deilum sorg Bandaríkjamanna.

Skjáskot af VKontakte-síðu Dzhokhar Tsarnaev. VKontakte er samfélagssíða sem svipar til Facebook.
Tamerlan sagði við ljósmyndara sem tók af honum myndir að hann hefði flúið Téténíu ásamt fjölskyldu sinni í upphafi tíunda áratugarins, og búið í Kasakstan um langt skeið áður en hann fluttist til Bandaríkjanna. Hann bætti því við að hann ætti ekki einn einasta vin í Bandaríkjunum vegna þess að hann skildi þá ekki.“

Þegar Ruslan Tsarni, frændi bræðranna, fékk fréttir af láti Tamerlan er hann sagður hafa sagt að frændi sinn væri aumingi sem „hefði átt skilið að deyja“.

Tamerlan Tsarnaev er sagður hafa verið áhugamannaboxari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×