Menning

Norðlægar borgir

Ein mynda Atla úr ferðalagi hans um norðlægar borgir
mynd ljósmyndasafn reykjavíkur/ Atli Heimir Hafsteinsson
Ein mynda Atla úr ferðalagi hans um norðlægar borgir mynd ljósmyndasafn reykjavíkur/ Atli Heimir Hafsteinsson

Í dag opnar Atli Heimir Hafsteinsson ljósmyndasýningu í Skotinu hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsi. Atli var í hópi ungra norrænna ljósmyndara sem valdir voru til þess að taka þátt í verkefninu North-ern Cities Project - skipulagt af Norrænu ljósmyndamiðstöðinni í Oulu, Finnlandi. Markmið verkefnisins var að fanga anda sex norðlægra borga í Skandinavíu og Rússlandi árið 2004.

Listamennirnir fengu frjálsar hendur og ferðuðust milli borganna Tromsö í Noregi, Oulu og Tornio í Finnlandi, Murmansk og Syktivar í Rússlandi og Happaranda í Svíþjóð í leit að myndefni. Verkefnið endaði svo í sýningu sem sýnd var víðs vegar í Skandinavíu árið 2005. Það er því Ljósmyndasafni Reykjavíkur sérstakur heiður að frumsýna efnið á Íslandi.

Sýningin í Skotinu er hluti af þessu verkefni Atla og má þar sjá afrakstur vinnu hans við að ferðast til ofangreindra borga, banka upp á hjá fólki og fá það til að sitja fyrir á ljósmyndum. Tilgangur hans var að draga upp raunsæja mynd af fólkinu og þeirra híbýlum í hverri borg fyrir sig og ná þannig fram persónulegri sýn á menningu þjóðanna.

Sýningin skiptist í tvo hluta. Annars vegar í myndvarpasýningu þar sem má sjá fólkið fyrir framan heimili sín og hins vegar sýningu á verkum á vegg, sem Atli skilgreinir sem eins konar tilraun til þess að lýsa borg í einni mynd.

Atli Már Hafsteinsson hefur á undanförnum árum unnið sem auglýsingaljósmyndari á Íslandi og má sjá dæmi af þeirri starfsemi hans á síðunni www.dund.is. Atli lærði ljósmyndun hjá Kristjáni Pétri Guðnasyni í Skyggnu-Myndverk og hefur sýnt víðs vegar bæði innanlands og utan.

- pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.