Innlent

Vinningur upp á hálfa milljón fimm­faldaðist

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sjö vinningshafar fengu svo eina milljón króna hver.
Sjö vinningshafar fengu svo eina milljón króna hver. Vísir/getty

Heppinn miðaeigandi vann 2,5 milljónir króna í Happdrætti Háskóla Íslands, úr hverju dregið var í kvöld. Vinningurinn hljóðaði upphaflega upp á 500 þúsund krónur en upphæðin fimmfaldaðist, þar sem um var að ræða svokallaðan trompmiða.

Sjö vinningshafar fengu svo eina milljón króna hver og fimmtán fengu 500 þúsund krónur í sinn hlut.

Milljónaveltan gekk hins vegar ekki út og verða því 30 milljónir í pottinum í mars. Vinningshafar í febrúar skipta með sér tæpum 111 milljónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×