Rannsóknarnefnd flugslysa í Noregi sendi í gær frá sér lokaskýrslu um slysið við Turøy í apríl 2016. Aðalspaði Super Puma losnaði fyrirvaralaust og þyrlan féll til jarðar úr tvö þúsund feta hæð. Allir þrettán um borð fórust. Nefndin segir að að vegna málmþreytu hafi sprunga myndast og þróast undir yfirborðinu án þess að uppgötvast – með hörmulegum afleiðingum.
Fram kemur í skýrslunni að notaðir hafi verið tilteknir íhlutir í gírinn frá tveimur framleiðendum. Airbus hafi hætt að skipta við annan þeirra eftir slysið. Rannsóknarnefndin segir hlutina sem áfram séu notaðir virðast vera sterkari. „Þau gögn, greiningar og prófanir sem rannsóknarnefndin hefur haft aðgang að, afsanna hins vegar ekki að þessir geti líka mögulega þróað leyndar málmþreytusprungur í efnið út frá skemmd á yfirborðinu,“ segir í skýrslunni.
Sjá einnig: Þáðu tilboð aldarinnar
Umræddar þyrlur voru settar í flugbann eftir Turøy-slysið en því hefur alls staðar verið aflétt. Rannsóknarnefndin tekur fram að ákvarðanir um lofthæfi séu ekki í höndum nefndarinnar heldur hjá eftirlitsaðilum. Airbus hafi sýnt Flugöryggisstofnun Evrópu fram á að líkurnar á sams konar óhöppum væru ásættanlegar með tilliti til áframhaldandi lofthæfis.
Fundið er að því í skýrslunni að hvorki Airbus né Flugöryggisstofnun Evrópu hafi gripið til nægilegra ráðstafana eftir að sextán fórust með Super Puma í Skotlandi 2009 til að koma í veg fyrir sams konar slys síðar.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir norsku skýrsluna viðamikla og að sérfræðingar stofnunarinnar þurfi á næstu vikum að kynna sér efni hennar.
„Landhelgisgæslan mun sömuleiðis ráðfæra sig við erlenda sérfræðinga. Í fljótu bragði er fátt sem kemur á óvart í skýrslunni en of snemmt er að tjá sig um hana að öðru leyti á þessum tímapunkti,“ segir Ásgeir.
Norska rannsóknarnefndin leggur fram tólf atriði sem færa má til betri vegar. Níu þeirra er beint að Flugöryggisstofnun Evrópu. Tveimur samhljóða ábendingum er beint að Evrópuráðinu og Alþjóðaflugmálastofnunni sem er beðin að tryggja að rannsóknarnefndin hafi frjálsan og óheftan aðgang að mikilvægum upplýsingum.
Í skýrslunni kemur fram að Airbus hafi tafið fyrir því að meðlimir rannsóknarnefndarinnar fengju aðgang að skjölum um hönnun og vottun og að hann hafi síðan verið takmarkaður við skoðun hjá Airbus í Frakklandi. Evrópska flugöryggisstofnunin hafi látið rannsóknarnefndina bíða í sex mánuði eftir tilteknum skjölum.
Lokaábendingin er til Airbus. Fyrirtækið er sagt verða að endurhanna gírkassann með tilliti til styrkleika, áreiðanleika og öryggis Gilles Bruniaux, flugöryggisstjóri Airbus, sagði í yfirlýsingu í gær að fyrirtækið hefði nýtt sér upplýsingar úr rannsókninni til að gera ýmsar öryggisráðstafanir vegna H225.