Veiði

Aflatölur laxveiðiánna í liðinni viku

Karl Lúðvíksson skrifar
Nýjar veiðitölur yfir stöðuna í laxveiðiánum gefa ekki tilefni til sérstakrar bjartsýni yfir því að ástandið eigi eftir að batna mikið í þeim ám sem verst standa.

Nú þegar vika er liðin af ágúst eru aðeins tvær ár komnar yfir 1000 laxa en það eru Blanda og Eystri Rangá.  Blanda er búin að vera á fullum gír í júlí en það styttist í yfirfall og þá detta veiðitölurnar niður sem er synd því mikið af laxi er í ánni.  Árnar sem eru á topp tíu listanum eiga þó flestar, ef ekki allar eftir að fara yfir 1000 laxa og flestar líklega gott betur en það svo ekki er ástandið alls staðar jafn slæmt og raunar á pari við meðalgóð ár.  En inn á milli eru ár sem eru í afskaplega slæmum málum og þær eru flest allar á vesturlandi nema Sogið.  Veiðin í Soginu er svo róleg að elstu menn muna ekki annað eins en það sem hefur bjargað mörgum veiðitúrnum er ágæt bleikjuveiði á vænni bleikju.  Tíu aflahæstu ár landsins eru hér en listann má skoða í heild sinni hjá www.angling.is



VeiðivatnDagsetningHeildarveiðiStangafjöldiLokatölur 2013
Blanda6. 8. 20141563142611
Eystri-Rangá6. 8. 20141306184797
Miðfjarðará6. 8. 2014860103667
Þverá + Kjarará6. 8. 2014851143373
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki.6. 8. 2014843205461
Norðurá6. 8. 2014733153351
Laxá á Ásum6. 8. 201461821062
Haffjarðará6. 8. 201456762158
Selá í Vopnafirði6. 8. 201456571664
Laxá í Aðaldal6. 8. 2014518181009





×