Sport

Ragna vann á Iceland International

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragna Ingólfsdóttir.
Ragna Ingólfsdóttir.

Ragna Ingólfsdóttir gerði sér lítið fyrir og fagnaði sigri á Iceland International mótinu í badminton sem fór fram um helgina.

Ragna mætti Camillu Overgaard frá Danmörkum í úrslitaviðureigninni sem var mjög spennandi.

Ragna vann fyrstu lotuna nokkuð örugglega, 21-14, en sú danska svaraði fyrir sig í annarri lotu, 21-16.

Í oddalotunni var Ragna með yfirhöndina allan tímann og vann með átta stiga mun, 21-13, og fagnaði þar með góðum sigri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×