Sport

Owen saknar Liverpool

Framherjinn knái hjá Real Madrid, Michael Owen, segist sakna heimaslóðanna í Liverpool og viðurkenndi í nýlegu viðtali að hann hefði ekkert á móti því að snúa heim ef sú staða kæmi upp. "Auðvitað hefði ég ekkert á móti því að snúa heim. Ég sakna vinanna og fjölskyldunnar. Ég mun halda áfram að berjast fyrir sæti í Real liðinu og ef ég fer ekki að fá fleiri tækifæri, gæti ég hugsað mér til hreyfings," sagði enski landsliðsmaðurinn. Owen er með bestan árangur framherja Real fyrir framan markið, þegar litið er á spilaðar mínútur, en hefur samt ekki notið náð fyrir augum knattspyrnustjóra síns.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×