Erlent

Ráðist á flutningabílstjóra í Írak

Hópur byssumanna gerði árás á sex tyrkneska flutningabíla rétt norður af borginni Kirkuk í Írak í nótt. Eins bílstjóra er saknað og er jafnvel talið að honum hafi verið rænt. Fjórir bílstjórar særðust og voru fluttir á sjúkrahús. Nú undir morgun kveiktu uppreisnarmenn í olíuleiðslu vestur af Kirkuk. Olíuleiðslan sem kveikt var í flytur einmitt olíu til Tyrklands en ekki er þó enn vitað hvort skemmdarverkin á henni tengist árásunum á flutningabílana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×