Lífið

Víðir hlær og slær framboð til forseta út af borðinu

Eiður Þór Árnason skrifar
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, á einum af mörgum upplýsingafundum.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, á einum af mörgum upplýsingafundum. Vísir/Vilhelm

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, ætlar ekki bjóða sig fram til embættis forseta Íslands í sumar. Þetta staðfestir hann í samtali við Vísi.

Víðir sem hefur verið áberandi í íslensku samfélagi undanfarnar vikur ásamt Ölmu Möller landlækni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni sem hafa birst landsmönnum nær daglega eftir að kórónuveiran fór hér að gera vart við sig.

Framkoma Víðis hefur vakið nokkra athygli meðal landans og hefur fjöldi fólks heitið því opinberlega að hlýða tilmælum hans um að virða tveggja metra regluna og halda sig heima.

Það að auki virðist þríeykið njóta mikils trausts meðal almennings en nýlegur Þjóðarpúls Gallups bendir til þess að 96% þjóðarinnar treysti almannavörnum og heilbrigðisyfirvöldum á Íslandi til þess að takast á við COVID-19 sjúkdóminn.

Gárungar voru ekki lengi að byrja að máta Víði við Bessastaði og nú er svo komið að stofnuð hefur verið Facebook-síða þar sem skorað er á hann að bjóða sig fram í fyrirhuguðum forsetakosningunum í sumar.

Umrædd Facebook-síða var stofnuð síðastliðinn sunnudag. 

Aðspurður um það hvort að hann hafi orðið var við umrædda síðu er Víðir ekki lengi að skella upp úr.

„Ég hef ekki íhugað það og mun ekki íhuga það. Ég hef nóg annað að gera og við erum með mjög góðan forseta.“

Hann segist ekki kannast við að hafa fengið óskir um forsetaframboð og sér ekki fyrir sér að endurskoða þessa afstöðu sína í náinni framtíð.

„Ég er bara mjög ánægður með þann sem við höfum og engin ástæða til þess að fara að skipta um forseta. Og hvað þá að ég fari í það, það er ekki vit í því.“

Til að ítreka þetta enn frekar þá tekur hann fram að það sé ekkert fararsnið á honum á næstunni.

„Fólk þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því. Ég ætla bara að vera áfram í því sem ég er að gera og maður á bara að vera í því sem maður kann, maður á ekki að vera að breyta of mikið til,“ segir Víðir léttur í bragði.

Tíminn verður þó að leiða í ljós hvort að þessi skýru skilaboð eigi eftir að sefa kröfur dyggra stuðningsmanna.

Á meðan er spurning hvort sjónir fari þá að beinast í auknum mæli að Ölmu Möller landlækni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni sem hafa ekki síður notið stuðnings almennings. 

Hvað sem því líður þá hafa frambjóðendur til forseta frest fram til 23. maí til að skila inn undirskriftum meðmælenda og öðrum tilskyldum gögnum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.